Verðskrá Ský
Félagsaðild:
Félagið er opið öllum sem vinna við eða hafa áhuga á tækni. Árgjöld fylgja almanaksárinu og eru rukkuð eftir aðalfund í febrúar ár hvert. Aðalfundur ákveður félagsgjald og má gera ráð fyrir að hækkanir milli ára séu í takt við verðlagsþróun. Gildir félagar eru þeir sem greiða árgjöldin og skilyrði fyrir afsláttum á viðburði að félagsgjald þess almanaksárs sé greitt. Greiði félagi ekki félagsgjaldið fellur hann útaf félagaskrá.
Hægt er að velja um tvær leiðir til að skrá sig í Ský, þ.e. annars vegar á vegum fyrirtækis og hins vegar á eigin vegum. Í báðum tilfellum er félagsaðild skráð á nafn þess einstaklings sem vill vera félagi og fylgir honum þó viðkomandi skipti um starf. Fyrirtæki og stofnanir geta ekki verið félagsmenn. Tekið skal fram að afsláttur á viðburði Ský er tengdur þeim sem greiðir félagsgjald fyrir viðkomandi aðila. Dæmi: Ef aðili er skráður sem einstaklingur í Ský en mætir á viðburð sem fyrirtæki hans greiðir, þá fær fyrirtækið ekki afslátt fyrir hann sem félagsmann. Ef hins vegar aðili er skráður í Ský á vegum síns fyrirtækis/stofnunar, þá fær vinnustaðurinn afslátt þegar viðkomandi sækir viðburði. (Því þurfa starfsmenn sem fyrirtæki greiða fyrir ávallt skrá sig í félagið á vegum fyrirtækis). Félagsmenn fá veglegan afslátt á viðburði félagsins og greiða þannig hratt upp félagsgjaldið.
Fyrirtækjaaðild:
Flestir félagar í Ský eru skráðir á vegum fyrirtækja og fá fyrirtækin verulegan afslátt af félagsgjöldunum sé um fleiri en einn starfsmenn að ræða. Þannig borgar fyrsti félagsmaður fullt gjald og allir eftir það fá 75% afslátt. Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi í febrúar ár hvert og félagsgjöld send út fljótlega eftir fundinn.
Verðskrá ársins 2026:
| Fyrsti félagi (100% gjald) | 40.000 kr. |
| Aðrir eftir það (75% afsláttur) | 10.000 kr. |
Félagsgjald einstaklinga:
Þeir sem skrá sig í félagið og eru EKKI á vegum fyrirtækja geta skráð sig sem einstaklinga í félagið (einstaklingur greiðir sjálfur félagsgjald og ráðstefnugjöld).
| Einstaklingsaðild | 10.000 kr. |
| Utan vinnumarkaðar | 0 kr. |
Aðilar utan vinnumarkaðar fá frítt í Ský s.s. eldri borgarar, atvinnuleitendur og námsmenn í fullu lánshæfu námi (þurfa að skrá hvenær áætlað er að því ljúki) og eru utan vinnumarkaðar. Þetta er gert til að koma til móts við þá sem eru ekki á vinnumarkaðinum en vilja taka þátt í starfi Ský.
Ráðstefnugjöld og námskeiðsgjöld:
Skv. auglýsingu hverju sinni en miðað að því að hafa þau sem lægst.
Einu afsláttarkjörin sem bjóðast eru að félagsmenn fá ódýrara á viðburði en þeir sem ekki eru félagar í Ský.
Aðeins fundar-/ráðstefnustjóri, fyrirlesarar og undirbúningsnefnd fá frítt á viðkomandi ráðstefnu.
Félagsgjöld 2026
![]()
Fyrirtækjaaðild
(á nafn starfsmanns):
- fyrsti félagi 40.000 kr.
- aðrir eftir það 10.000 kr.
Einstaklingsaðild:
- á eigin vegum 10.000 kr.
- utan vinnumarkaðar 0 kr.