Aðgengi, virði og stefna í stafrænum heimi
Í hörðu samkeppnisumhverfi nútímans er lykilatriði að stafræn þróun skili raunverulegu og mælanlegu virði. Þar er hlutverk vörustjórnunar og markvissrar stefnumótunar ómetanlegt.
Á þessum hádegisfundi ræða innlendir og erlendir sérfræðingar hvernig aðgengismál, skipulag, samstarf og skýr sýn móta árangursríka vöruþróun. Fjallað verður um hvernig rétt nálgun getur tengt saman stefnu, teymi og tækni og skilað mælanlegu virði.
Dagskrá:
11:45 Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

12:15 Aðgengi í stafrænum heimi – reynsla og innsýn frá Evrópu
Í þessum fyrirlestri gefst einstakt tækifæri til að hlýða á sérfræðing sem hefur fylgst með þróun og innleiðingu aðgengisregluverks víðsvegar um Evrópu. Nú þegar áform eru uppi um að lögfesta aðgengisstaðla hér á landi, og sum fyriræki hafa þegar tekið upp WCAG-verkferla,. Mikilvægt er að læra af þeim sem hafa séð hvað virkar best. Fyrirlesturinn hentar öllum sem koma að stafrænum lausnum, vefhönnun, lagasetningu eða þjónustu við almenning – og vilja tryggja aðgengi fyrir öll.
Susanna Laurin, Funka Foundation og International Association of Accessibility Professionals (IAAP)
Í þessum fyrirlestri gefst einstakt tækifæri til að hlýða á sérfræðing sem hefur fylgst með þróun og innleiðingu aðgengisregluverks víðsvegar um Evrópu. Nú þegar áform eru uppi um að lögfesta aðgengisstaðla hér á landi, og sum fyriræki hafa þegar tekið upp WCAG-verkferla,. Mikilvægt er að læra af þeim sem hafa séð hvað virkar best. Fyrirlesturinn hentar öllum sem koma að stafrænum lausnum, vefhönnun, lagasetningu eða þjónustu við almenning – og vilja tryggja aðgengi fyrir öll.

12:35 AWoW - hvernig við tengjum saman stefnu, teymi og tækni
Í fyrirlestrinum verður farið yfir hvernig Arion hefur mótað AWoW stjórnskipulagið til að styðja við tæknilega vöruþróun. Kynnt verður hvernig framkvæmdastjórn, verkefnaráð, kjarnateymi og tækniteymi vinna saman, og hvernig tæknilegir vörustjórar gegna lykilhlutverki sem brú milli hagaðila og UT. Einnig verður farið yfir hvernig forgangsröðun verkefna fer fram í þessu landslagi.
María Blöndal, Arion banki

12:55 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

13:00 Frá hugmynd að (lausn)…að virði!
Hvað er virði? Er það kóði sem virkar, notandi sem brosir, eða samtal sem skilar árangri?
Í þessu erindi skoðum við hvernig verkefnastýring og vörustýring móta lausnir sem lifa þrátt fyrir ólíka sýn,menningu og kerfi. Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði. Þetta er hugvekja um samvinnu, breytingar og hvernig við sköpum meira en bara vöru – við sköpum áhrif.
Guðríður Hjördís Baldursdóttir, Advania
Íris Ósk Ólafsdóttir, Advania
Hvað er virði? Er það kóði sem virkar, notandi sem brosir, eða samtal sem skilar árangri?
Í þessu erindi skoðum við hvernig verkefnastýring og vörustýring móta lausnir sem lifa þrátt fyrir ólíka sýn,menningu og kerfi. Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði. Þetta er hugvekja um samvinnu, breytingar og hvernig við sköpum meira en bara vöru – við sköpum áhrif.

13:40 Umræður
14:00 Fundarslit
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um stafræna vörustýringu
-
5. nóvember 2025
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 8.300 kr.
Utanfélagsmenn: 14.900 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr. -
Léttur hádegisverður:
Fajitas kjúklingur. Hrísgrjón. Chili sin carne. Tómatar með kóríander og hvítlauk. Romain salat. Pastasalat með grilluðu grænmeti og paprikusósu. Brauð, smjör og hummus