Skip to main content

Vorráðstefna fagfélaga

Mótum framtíðina saman

Sameiginleg vorráðstefna fyrir félaga Ský, Stjórnvísi og Mannauðs. Fjölbreyttir fyrirlestrar úr mismunandi áttum viðskiptalífsins um framtíðina. 
Endum daginn á að stækka tengslanetið og skála fyrir framtíðinni og höldum svo út í vorið!

13:00   Setning ráðstefnunnar
Jón Jónsson
LinkedIn logo Jón Jónsson stýrir ráðstefnunni
Edda Hermansdóttir
13:10   Apótekari framtíðarinnar
Heilbrigðisþjónusta þróast hratt og í apótekum landsins starfar ein aðgengilegasta heilbrigðisstétt landsins. Hvernig mun heilsuþjónusta í apótekum framtíðarinnar líta út, hvernig munum við tala um heilsu og hvaða ólíku hæfileika þarf að ná saman til að gera hóp framúrskarandi apótekara?
LinkedIn logo Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og heilsu
Sylvía Kristín Ólafsdóttir
13:35   Við erum öll að fljúga í þoku
Þegar ég var unglingur var einn sími heima hjá okkur. Þú hringdir ekki í manneskju heldur í heimilisfangið. Tækið fór svo í vasann hjá hverjum og einum og svo varð hann að tölvu. Nú er hann að verða að einhverjum sem talar við þig, skilur þig, og svarar þér, jafnvel áður en þú biður um það.
Enginn veit nákvæmlega hvernig framtíðin verður. Það sem skiptir máli er ekki spáin, heldur hæfileikinn til að lesa aðstæður, aðlagast breytingunum á leiðinni og taka réttu skrefin hverju sinni. Í þessu erindi tala ég um hvað það þýðir að leiða þegar gervigreind, tækni og hröð umbreyting gera framtíðina ófyrirsjáanlegri en nokkurn tímann.
LinkedIn logo Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova
Tómas Ingason
14:00   Sterkari tengingar – sterkari framtíð
Erindið fjallar um hvernig Icelandair sem verður 90 ára á næsta ári hefur alla tíð byggt starfsemi sína á skýrri framtíðarsýn, nýsköpun og sterku viðskiptalíkani sem hefur skapað öflugar tengingar og hefur haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, hagkerfi og lífsgæði í landinu. Fjallað verður um vaxtartækifæri og tækniframfarir sem gera félaginu kleift að efla tengingar enn frekar á komandi árum og halda anda Íslands á lofti á heimsvísu.
LinkedIn logo Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair

14:25   Kaffihlé

Elín Sif KjartansdóttirPáll Rafnar Þorsteinsson
14:55   Tæknin, framtíðin og fullveldið
Í erindinu verður varpað ljósi á framtíðarsýn og yfirstandandi vinnu stjórnvalda í þá veru að greiða fyrir þróun og hagnýtingu gervigreindarlausna í íslensku samfélagi, stjórnsýslu og atvinnulífi en standa á sama tíma vörð um grundvallarréttindi borgaranna, siðferðileg og menningarleg gildi. Lykiláskorun á þeirri vegferð snýst um að tryggja áreiðanlegt forræði og stjórn yfir grunninnviðum tækninnar.
LinkedIn logo Elín Sif Kjartansdóttir, sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu
LinkedIn logo Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu
Edda Hermansdóttir
15:20   Hvort viltu vera gleðigjafi eða fýlupúki?
Fyrirlesari lýsir ferðalagi sínu frá því að vera annálaður gleðigjafi í það að verða fýlupúki og leiðinni til baka.
LinkedIn logo Ragnhildur Vigfúsdóttir, markþjálfi

15:45  Skálum saman fyrir framtíðinni og tengjumst!
Léttar veitingar og tengslanetið stækkað í góðra vina hópi.

17:00  Partýið búið - haldið saman út í vorið!



B93A1880
B93A1887
B93A1901
B93A1907
B93A1913
B93A1921
B93A1924
B93A1936
B93A1949
B93A1952
B93A1958
B93A1960
B93A1966
B93A1968
B93A1972
B93A1980
B93A2000
B93A2006
B93A2010
B93A2029
B93A2037
B93A2042
B93A2052
B93A2055
B93A2057
B93A2082
B93A2139
B93A2167
B93A2183
B93A2204
B93A2222
B93A2233
B93A2236
B93A2250
B93A2257
B93A2283
B93A2288
B93A2293
B93A2300
B93A2304
B93A2308
B93A2321
B93A2340
B93A2342
B93A2354
B93A2365
B93A2373
B93A2377
B93A2382
B93A2390
B93A2396
B93A2397
B93A2399
B93A2410
B93A2420
B93A2429
B93A2434
B93A2441
B93A2445
B93A2457
B93A2465
B93A2470
B93A2479
B93A2484
B93A2487
B93A2502
B93A2504
B93A2532
B93A2540
B93A2555
B93A2593
B93A2605
B93A2618
B93A2622
B93A2632
B93A2645
B93A2673
B93A2695
B93A2737
B93A2769
B93A2794
B93A2800
B93A2825
B93A2830
B93A2841
B93A2854
B93A2873
B93A2880
B93A2892

  • 29. apríl 2026
  • kl. 13:00 - 17:00
  • 14.900 kr.
  • Léttar veitingar