Skip to main content

Fjarskipti, náttúruvá og almannavarnir

Fjarskipti, náttúruvárvöktun og almannavarnir eru mjög samfléttaðar. Ekki er hægt að tryggja almannavarnir nema trygg fjarskipti séu til staðar. Í ýmsum tilvikum byggjast almannavarnir á tryggri náttúruvárvöktun. Ýmiskonar náttúruvá getur og hefur ógnað tryggum fjarskiptum og náttúruvárvöktun er háð tryggum fjarskiptum. Svo má ekki gleyma aðfangakeðju fjarskiptainnviða sem getur reynt á við ýmsar aðstæður. Hvernig hangir þetta allt saman. Fjallað verður um málið frá ýmsum hliðum. Upplögð ráðstefna fyrir þá sem vilja auka öryggisvitund sína í þessu samhengi eða hafa einhverja aðkomu að öryggismálum og almannavörnum.

Dagskrá:

11:50   Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Theodór Freyr Hervarsson
12:15   Náttúruvárvöktun og fjarskipti
Veðurstofan er með yfir 700 mælistöðvar sem fylgjast með veðri, vindi, vatni, jarðskjálftum, landrisi og taka á móti stöðugu streymi gagna frá allskyns mælum, veðursjám og gervitunglum. Mælar eru ýmist í alfaraleið eða fjarri byggð og raffæðingu. Allt byggist þetta á traustum fjarskiptum og breytingar eða tjón á fjarskiptainnviðum kalla á breytingar á eftirlitsinnviðum Veðurstofunnar.
LinkedIn logo  Theodór Freyr Hervarsson, Veðurstofa Íslands
Magnús Hauksson
12:35   Fjarskipti í náttúrvá
Viðnámsþol fjarskipta undir álagi. Samræmd viðbrögð við rafmagnsleysi og náttúruvá – reynsla frá óveðrinu 2019.
LinkedIn logo  Sigurður Ingi Hauksson, Neyðarlínan

12:55   Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

Njörður Tómasson
13:05   Áfallaþolin fjarskiptanet
Fjallað um hvernig byggja megi upp og viðhalda áfallaþolnum fjarskiptanetum sem standast truflanir vegna náttúruvár, tæknilegra bilana og ytri áhrifa.
LinkedIn logo  Njörður Tómasson, Fjarskiptastofa
Þór Jes Þórisson
13:25   Breytt staða í heimsmálum og möguleg framtíðaráhrif á íslenska fjarskiptamarkaðinn
Lausleg yfirferð á breyttri heimsmynd, þ.s. öryggismál eru í fyrirrúmi. Áhrifin á viðskipti, birgðakeðjur og tækniþróun. Möguleg áhrif á íslenskan fjarskiptamarkað til næstu ára.
Þór Jes Þórisson

13:45   Umræður

14:00   Fundarslit

Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir
Fundarstjóri:
LinkedIn logo  Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, Fjarskiptastofa

20260506 120452
20260506 120501
20260506 120512
20260506 120538
20260506 140429
20260506 140434
20260506 141051



  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Léttur hádegisverður:
    Kalkúnalæri í sveppasósu (GF). Hnetusteik með sveppasósu (V). Grískt salat með fetaosti (GF). Grænt salat(V, GF). Bulgusalat (V). Nýbakað brauð, smjör og tómatpestó (V, GF).