Gögn sem þjónusta
Gögn sem grunnur að stafrænum opinberum innviðum: Hvernig tryggjum við að opinber gögn nýtist ekki aðeins innan stjórnsýslunnar heldur einnig fyrirtækjum, nýsköpun og almenningi?
Dagskrá:
11:50 Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

12:15 Frá sterkum stofnunum til samtengdrar stjórnsýslu
Samtengd opinber gögn geta einfaldað þjónustu, aukið traust og stuðlað að nýsköpun á öllum sviðum. Með skýrari ábyrgð, samhæfðum gögnum og öruggri miðlun getur stjórnsýslan veitt markvissa þjónustu á mikilvægum tímamótum hvers einstaklings. Sterkar stofnanir verða sterkari sem hluti af samtengdri heild.
Hlynur Bjarki Karlsson, Stafrænt Ísland
Samtengd opinber gögn geta einfaldað þjónustu, aukið traust og stuðlað að nýsköpun á öllum sviðum. Með skýrari ábyrgð, samhæfðum gögnum og öruggri miðlun getur stjórnsýslan veitt markvissa þjónustu á mikilvægum tímamótum hvers einstaklings. Sterkar stofnanir verða sterkari sem hluti af samtengdri heild.

12:35 Ný barnaverndargátt: Gögn sem bjarga lífi – frá eyðublaði til öryggis
Barnaverndargátt er ætlað að auðvelda yfirsýn og gagnasamskipti milli Barna- og fjölskyldustofu og barnaverndarþjónusta sveitarfélaganna. Í þessu erindi verður fjallað um hvernig réttu gögnin, á réttum tíma og til réttra aðila, geta skipt sköpum …. jafnvel bjargað lífi. Skoðað verður hvernig við breytum gögnum úr eyðublaði í lifandi innviði sem styðja við hratt og öruggt viðbragð í barnavernd. Einnig verður rætt hvernig gögn geta byggt undir öryggi barns, dregið úr kvíða tilkynnanda og stuðlað að mannúðlegri nálgun gagnvart þeim sem tilkynntur er og oft er sjálfur í viðkvæmri stöðu.
Karen María Jónsdóttir, mennta- og barnamálaráðuneytið

12:55 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

13:05 Nýting gagna við mat á þjónustuþörf fólks í atvinnuleit
Vinnumálastofnun hefur undanfarið unnið að breyttri nálgun við mat á þjónustuþörf einstaklinga. Er nú í ríkari mæli byggt á fyrirliggjandi gögnum um stöðu einstaklinga og mat á þjónustuþörf byggt á því.
Ásta Ásgeirsdóttir, Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun hefur undanfarið unnið að breyttri nálgun við mat á þjónustuþörf einstaklinga. Er nú í ríkari mæli byggt á fyrirliggjandi gögnum um stöðu einstaklinga og mat á þjónustuþörf byggt á því.

13:25 Opinber gögn sem þjónusta og afleidd ábyrgð
Stafrænir innviðir samfélagsins byggja í æ ríkara mæli á opinberum gögnum. Þegar hið opinbera deilir gögnum skapast mikilvægur jarðvegur þar sem þriðju aðilar og fyrirtæki geta þróað lausnir sem stórbæta þjónustu við endanotendur. En að gera gögn aðgengileg er aðeins fyrsta skrefið. Farið verður yfir hlutverk opinberra gagna frá sjónarhóli gagnaneytendans, hvað við græðum á því að opna þau á kerfisbundinn hátt, og kafar í mikilvæga en oft gleymda spurningu: Hvaða ábyrgð fylgir þegar nýjar þjónustur eða gervigreind taka afleiddar ákvarðanir sem byggja alfarið á opinberum grunngögnum?
Óli Páll Geirsson, APRÓ

13:45 Umræður
14:00 Fundarslit
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um rafræna opinbera þjónustu og stjórn faghóps Ský um hagnýtingu gagna
-
20. maí 2026
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 8.300 kr.
Utanfélagsmenn: 14.900 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr. -
Léttur hádegisverður:
Nauta stirfry með hrísgrjónum (LF). Stökkar gyosur með tofu og grænmeti (V). Gulrætur og seasam salat (V, GF). Grænt salat (V, GF). Kalt núðlusalat (V). Nýbakað brauð, smjör og hummus (V, GF).