Skip to main content

Hugbúnaðarráðstefnan: Hugbúnaðargerð án handskrifaðs kóða

Gervigreind er að gjörbreyta því hvernig við þróum hugbúnað. Við erum að færast frá því að handskrifa kóða yfir í að stýra gervigreindarfulltrúum (AI agents) sem sjá um sífellt stærri hluta hugbúnaðargerðarinnar.

Á Hugbúnaðarráðstefnu Ský skoðum við hvernig þessi þróun er að breyta hlutverki hugbúnaðarsérfræðinga, vinnubrögðum þróunarteyma og hugbúnaðargerð eins og við þekkjum hana. Við fáum innsýn í raunveruleg verkefni, reynslu og áskoranir þeirra sem eru fremstir í þessari þróun.

Dagskrá:

11:50   Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Bjarni Ingimar Auðarson
12:15   Gagnatengingar og sjálfstæði í gervigreind fyrirtækja

LinkedIn logo  Bjarni Ingimar Auðarson, ExOS
Aron Heiðar Steinsson
12:30   Stafrænir starfsmenn
Hvernig byggir og rekur einn maður gagnamiðil með tugþúsundum síðna þegar gervigreind skrifar nánast allan kóðann?
LinkedIn logo  Aron Heiðar Steinsson, Karp
Hjörtur Sigurðsson
12:45   Ég forritaði hjúkrunarheimili
Gervigreind hefur gjörbreytt hugbúnaðargerð. Næst mun hún breyta starfi allra sem vinna þekkingarvinnu. Hjörtur sýnir hvernig hönnun hjúkrunarheimilis varð til á einum degi. Verkefnið var að hanna byggingu. Hugbúnaðurinn sem þurfti til að hanna, skoða og breyta hönnun varð til á leiðinni, eftir þörfum.
LinkedIn logo  Hjörtur Sigurðsson, Mynstra

13:00   Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

Skúli Arnlaugsson
13:05   Tímaflakk
Hvað gerist þegar einn einstaklingur getur tekið að sér fleiri hlutverk, en þarf enn sérfræðinga sér við hlið? Reynslan af því að smíða vörur með AI-agentum, harness, domain expertum og hugleiðingar um hvað við öðlumst og hverju við fórnum.
LinkedIn logo  Skúli Arnlaugsson, Gangverk
Friðrik Þór Reynisson
13:20   Óhemjan tamin
Innleiðing gervigreindar í hugbúnaðarþróun snýst um meira en tæknina sjálfa. Hún vekur upp ýmsar spurningar og tilfinningar: Getum við nú gert allt hundrað sinnum hraðar? Munum við missa vinnuna? Getum við náð tökum á verkfærinu? Verður ekkert gaman í vinnunni lengur?
Fjallað verður um reynsluna af því að innleiða gervigreind í hugbúnaðarferlana og hvernig tekist var á við þrjár hliðar óhemjunnar: óttann, ákafann og gervigreindina sjálfa. Hvað gekk vel, hvað fór úrskeiðis og hvað lærðum við í leiðinni.

LinkedIn logo  Friðrik Þór Reynisson, FiveDegrees
Helga Ingimundardóttir
13:35   Erindrekinn vinnur, nemandinn ber ábyrgð
Gervigreindarerindrekar (AI agents) eru að gjörbreyta hugbúnaðargerð. Þeir geta skrifað kóða, keyrt prófanir og leyst verkefni sem áður kröfðust umtalsverðrar handavinnu. Fjallað verður um hvernig nemendum er kennt að vinna með erindrekum, afmarka verkefni, yfirfara niðurstöður og halda stjórn á vinnuferlinu.
LinkedIn logo  Helga Ingimundardóttir, Háskóli Íslands

14:00   Fundarslit

Iðunn Tara Ásgrímsdóttir
Fundarstjóri:
LinkedIn logo  Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, Controlant




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Léttur hádegisverður:
    Kalkúnalæri í sveppasósu (GF). Hnetusteik með sveppasósu (V). Grískt salat með fetaosti (GF). Grænt salat (V, GF). Bulgusalat (V). Nýbakað brauð, smjör og tómatpestó (V, GF).