Innleiðing NIS2 og CRA á tímum takmarkalausrar gervigreindar
Á sama tíma og gervigreind er að verða takmarkalaus er unnið af kappi að þróa og innleiða reglugerðir til að samræma öryggi og seiglu innan Evrópu. Ísland sem hluti af EES fylgir viðeigandi reglugerðum og fyrirtæki sem framleiða vörur og þjónustu fyrir evrópskan markað þurfa að uppfylla allar tilskipanir og reglugerðir sem þar gilda – hvort sem þær verið innleiddar á Íslandi eða ekki.
Á ráðstefnunni verður fjallað um þessi mál frá ýmsum sjónarhornum til að fá mynd á stöðu Íslands og íslenskra fyrirtækja í þessu ljósi.
Hver er staða og stefna Íslands varðandi gervigreind? Hvaða áhrif hefur NIS2 og tilheyrandi lög og reglur í íslenskt samfélag? Hverjir þurfa að huga að NIS2 og hvenær? Hvaða áhrif hefur CRA á íslensk fyrirtæki sem starfa á evrópskum markaði? Hvaða staðlar nýtast í slíkum pælingum? Á takmarkalaus gervigreind og krefjandi reglugerðir vænlega samleið?
Ráðstefnan er upplögð fyrir þau sem þurfa að huga að NIS2 eða CRA og íhuga að nota gervigreind í því samhengi.
Dagskrá:
11:50 Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Starfshópur stjórnvalda um gervigreind skilaði tillögum sínum í október. Hjálmar fer yfir helstu niðurstöðurnar: hvar Ísland stendur, hvað þarf til að nýta tæknina af ábyrgð og hvað snýr að netöryggi og mikilvægum innviðum.

Örar tæknibreytingar og stöðug aukning netógna gera netöryggismál að sí mikilvægara viðfangsefni stjórnvalda. Í erindinu verður fjallað um helstu áskoranir málaflokksins og þau verkefni sem blasa við stjórnvöldum, meðal annars við þróun regluverks.
12:55 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

CRA breytir kröfum til netöryggis vara með stafræna þætti á Evrópumarkaði. Hvað þýðir það fyrir íslensk fyrirtæki, hver ber ábyrgð og hvað þarf að gera til að undirbúa sig? Farið verður yfir helstu kröfur CRA, hvenær þær taka gildi og hvað framleiðendur, innflytjendur og dreifingaraðilar þurfa að hafa í huga.

Fjallað verður um leið til að ná áttum í frumskógi krefjandi regluverks um öryggi og seiglu: hvernig mæta má þeim kröfum sem það setur með einni samræmdri aðferð og mikilvægi þess að færa áhersluna frá regluvörslu yfir í uppbyggingu á getu til að takast á við breytt öryggisumhverfi.
13:40 Umræður
14:00 Fundarslit
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um öryggismál
-
11. nóvember 2026
-
kl. 11:50 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 8.300 kr.
Utanfélagsmenn: 14.900 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr. -
Léttur hádegisverður:
Ítalskar kjötbollur í tómat og chili (GF,LF). Grænmetisbollur með paprikusósu (V). Pastasalat með blönduðu grænmeti (V). Radicchio salat (V,GF). Brokkólísalat með granateplum og appelsínum (V,GF). Nýbakað brauð, smjör og hvítlauks aioli (V,GF).
