Skip to main content

Bebras áskorunin

Ein skemmtilegasta upplýsingatækniáskorunin á Íslandi

Bebras áskorunin er skemmtileg alþjóðleg áskorun sem haldin er árlega í yfir 70 löndum og ætluð til kynna tölvunarhugsun fyrir ungu fólki og vekja áhuga barna og ungmenna á STEM greinum. 

Áskorunin er opin 9.-20. nóvember 2026 og fer fram á www.bebras.is

Bebras er í boði bæði á íslensku og ensku og fer þátttaka fram á netinu. Nemendur hafa 45 mínútur til að glíma við skemmtileg verkefni sem byggja á tölvunarhugsun (e. Computational Thinking) og eru sniðin að þeirra aldri. Eftir að áskorun lýkur geta kennarar nýtt sér efnið til að vinna áfram með nemendum. 

Áskorunin er ókeypis og öllum nemendum á aldrinum 6 - 18 ára boðið að taka þátt. Markmiðið er að sem flestir nemendur fái tækifæri til að vera með.

Til að skóli geti skráð nemendur í Bebras áskorunina þarf umsjónarmaður (kennari) að sækja um aðgang á www.bebras.is/admin og er leiðbeiningar að finna hér.

Dæmi um verkefni:

Verksmiðjan

Stafrænt hólf

Ísbúðin

Bangsaleitin

Um Bebras:
Bebras (e. Beaver) áskorunin er alþjóðlegt verkefni sem hefur það að markmiði að auka áhuga á upplýsingatækni og efla tölvunarhugsun (e. Computational thinking) meðal nemenda á öllum skólastigum. Áskorunin fer fram samtímis í mörgum löndum í nóvember ár hvert.  Bebras er í boði bæði á íslensku og ensku og tilvalið tækifæri til að leyfa nemendum að glíma við skemmtileg verkefni sem henta hverjum aldri. Í áskoruninni leysa þátttakendur þrautir byggðar á hugsunarhætti forritunar. Bebras er ein fjölmennasta áskorunin sem notuð er til kennslu í upplýsingatækni í heiminum og var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í nóvember 2015.

Árið 2025 voru tæplega 4,3 miljónir þátttakenda frá 78 löndum (sjá nánar á www.bebras.org) og þar af 3.162 nemendur úr 44 skólum á Íslandi.

Hvað er Bebras?
Bebras var upphaflega stofnað af Prófessor Valentina Dagiene hjá Háskólanum í Vilnius, en Bebras (e. Beaver) er litháíska heitið á dýrinu bifur. Hún ákvað að nýta bifur sem ímynd áskorunarinnar vegna þess dugnaðar og fullkomnunaráráttu sem þeir virðast hafa. Bifurinn er duglegt, vinnusamt og gáfað dýr sem vinnur stöðugt í stíflunum sínum til að gera þær betri og stærri. Fyrsta Bebras áskorunin fór fram í Litháen árið 2004 og hefur vaxið gríðarlega frá þeim tíma. Nú er Bebras eitt fjölmennasta verkefni í heiminum sem hefur það að markmiði að auka áhuga ungmenna á upplýsingatækni.

Nánari upplýsingar er að finna á www.bebras.is



  • 9. nóvember 2026