Skip to main content

Gagnastjórnun í hraðari heimi

Gögn hafa aldrei verið jafn aðgengileg og möguleikarnir til að nýta þau aldrei fleiri. Sjálfsafgreiðsla í greiningartólum og erindrekar sem vinna verkefni sjálfstætt breyta því hvernig við störfum. En hvernig tryggjum við að hægt sé að treysta niðurstöðunum?

Á fundinum skoðum við hvers vegna gæði gagna, skýrt eignarhald og góð gagnastjórnun eru ekki óþarfa flækjustig heldur lykillinn að því að nýta þessa nýju möguleika af öryggi.

Dagskrá:

11:50   Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

Sverrir Ingi Sigþórsson
12:15   Spyrjum bara gervigreindina: Af hverju góð gögn duga ekki alltaf
Í fyrirlestrinum verður farið yfir hvernig uppbygging gagnainnviða Smitten og gæðastýring gagna hafa lagt grunn að bættri þjónustu við viðskiptavini félagsins. Þá verða sýnd dæmi um hvernig gervigreind getur lagt rangt mat á staðfest gögn og mistúlkað þau þegar viðskiptalegt samhengi skortir.
LinkedIn logo  Sverrir Ingi Sigþórsson, Smitten
Camilla Ósk Hákonardóttir
12:35   Bremsurnar gera okkur fær um að keyra hratt
Eignarhald, gæði og traust á gögnum á tímum margfaldaðs hraða.
LinkedIn logo  Camilla Ósk Hákonardóttir, Embla Medical

12:55   Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

Davíð Jóhannsson
13:00   
Í vinnslu
LinkedIn logo  Davíð Jóhannsson, Landsbankinn
Ólafur Konráðsson
13:20   Nýji viðskiptavinurinn er agent: Hvað þurftum við að byggja?
Notendur gagna vilja grafa dýpra en mælaborðin leyfa og eru í auknum mæli farnir að spyrja agenta. Hvað þarf að vera til staðar þegar nýr lesandi gagnanna er ekki manneskja?
LinkedIn logo  Ólafur Konráðsson, Fenris Creations

13:40   Umræður

14:00   Fundarslit

Helgi Skúli Friðriksson
Fundarstjóri:
LinkedIn logo  Helgi Skúli Friðriksson, Varist




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Léttur hádegisverður:
    Kjúklingur í grískri marineringu (GF). Gyosur með tófú og grænmeti (V,LF). Perlu kúskússalat (V,LF). Tómat- og avókadósalat (V,LF,GF). Kartöflusalat með dillsósu (GF). Grænt salat (V). Brauð, smjör og ólífumauk.