Vefþróun og gervigreind: Hvað er framundan?
Vefþróun er á stöðugri hreyfingu og breytingarnar gerast hratt. Við fáum reynslubolta úr vefheiminum til að rýna í nýjustu stefnur og strauma og spá fyrir um hvað er framundan. Viðburðurinn er haldinn af Ský í samstarfi við Samtök vefiðnaðarins (SVEF).
Dagskrá:
11:50 Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

12:15 Stafræn hönnun, gervigreind og stjórnarhættir
Auka hraðann án þess að glata trausti
Pablo Santos, Íslandsbanki
Auka hraðann án þess að glata trausti


12:55 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

13:00 Þegar forritun er minni flöskuháls
Erum við ekki örugglega að leysa réttu verkefnin?
Ólafur Kjartansson, Hugsmiðjan
Erum við ekki örugglega að leysa réttu verkefnin?

13:20 Staldrað við
Þegar hægt er að stökkva beint frá hugmynd í lausn er freistandi að stytta sér leið í gegnum hönnunina. En hvar borgar sig að nýta hraðann og hvar þarf að staldra við?
Steinar Ingi Farestveit, Kolibri
Þegar hægt er að stökkva beint frá hugmynd í lausn er freistandi að stytta sér leið í gegnum hönnunina. En hvar borgar sig að nýta hraðann og hvar þarf að staldra við?

13:40 Gervigreindin fyllir í eyðurnar – ef þú gerir það ekki
Þegar erindrekinn er fyrsti notandinn: hvað AX (Agent Experience) þýðir fyrir vöruna og teymið, og hvar þú byrjar.
Klara Arnalds, Avo
Þegar erindrekinn er fyrsti notandinn: hvað AX (Agent Experience) þýðir fyrir vöruna og teymið, og hvar þú byrjar.
14:00 Fundarslit

Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun og Samtök vefiðnaðarins (SVEF)
-
21. október 2026
-
kl. 11:50 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 8.300 kr.
Utanfélagsmenn: 14.900 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr. -
Léttur hádegisverður:
Kjúklingakebab (GF,LF). Indverskur grænmetisréttur (V,GF). Kjúklingabaunasalat með stökku grænmeti (V,GF). Grænt salat (V,GF). Agúrkusalat með valmúafræjum (V,GF). Nýbakað brauð, smjör og hummus (V,GF).
