Skip to main content

Persónuvernd

Persónuverndarstefna Ský:

Skýrslutæknifélag Íslands eru félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarmarkmiða. Félagið hefur ekki persónuverndarfulltrúa þar sem félagið fellur ekki undir þá skilgreiningu skv. lögum nr 90/2018 málsgrein 35. Allar fyrirspurnir um persónuvernd félagsins skal senda á sky@sky.is.

Félagið heldur utan um lágmarks persónuupplýsingar viðskiptavina. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að halda utanum viðburði/samskipti og félagatal ásamt reikningagerð. Upplýsingum er aldrei dreift til 3ja aðila.

Stefna Ský um meðferð persónuupplýsinga hlýtur lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í þeim tilfellum þar sem persónulegar upplýsingar eru skráðar svo sem vegna félagsaðildar eða skráningar á viðburði og gefnar eru upp persónuupplýsingar mun félagið sjá til þess að upplýsingarnar séu geymdar á öruggan hátt og aldrei gefnar upp til 3ja aðila eða notaðar í öðrum tilgangi án samþykkis viðkomandi eða með dómsúrskurði. 

Við heimsóknir á vefsíður okkar verða til ýmsar upplýsingar sem eingöngu eru notaðar í tölfræðilegum tilgangi svo sem fjölda heimsókna á vefi, þjónustustigi og öðru tengt vefmælingum (e. Cookies) og eru allir notendur upplýstir um það sem fara inn á vefi félagsins eftir 1. júní 2018. 

Tilgangur:
Upplýsingarnar eru unnar fyrst og fremst til að geta efnt formlega og óformlega samninga við viðskiptavini félagsins og til að sinna öðrum þeim skyldum sem leiða af þjónustu við viðskiptavini, en einnig fer vinnslan fram til að tryggja að viðskiptavinir félagsins fái góða þjónustu.

Félagatal:
Félagsaðild er á einstaklinga og þarf því að hafa lágmarksupplýsingar um félagsmenn til að tryggja að ljóst sé hvaða einstakling um er að ræða. Einnig þarf að halda utan um hver er greiðandi félagsgjalds. Öll samskipti milli félagsins og félaga fara fram í gegnum tölvupósta og því nauðsynlegt að fá uppgefið netfang í upphafi en viðkomandi getur þó afskráð netfangið hvenær sem er eftir það. Vistað er í félagatali þegar viðkomandi fær tímaritið Tölvumál sent í pósti til sín og einnig eru samskipti vistuð þegar við á.

Upplýsingar sem krafist er:
- kennitala einstaklings
- nafn einstaklings
- tölvupóstfang einstaklings
- kennitala greiðanda
- nafn greiðanda
aðrar upplýsingar eru valkvæðar svo sem símanúmer.

Póstlisti:
Allir sem skrá sig á póstlista félagsins þurfa að gefa upp tölvupóstfang og nafn. Póstlista er ALDREI dreift til 3ja aðila og eingöngu notaður til að auglýsa starfsemi félagsins.  Allir sem skrá sig á viðburði félagsins velja hvort þeir fari á póstlista með því að merkja eða afmerkja í hak um það. Hægt er að segja sig af póstlistanum hvenær sem er með því að ýta á "afskrá" í fjöldapóstum eða senda póst á sky@sky.is. Einnig er alltaf hægt að senda ósk um að eyða gögnum um sig á sky@sky.is (nema lögbundnum bókhaldsgögnum).

Viðburðaskráning:
Helsta starfsemi félagsins felst í að halda fræðsluviðburði. Allir sem mæta á viðburði verða að gefa upp lágmarksupplýsingar svo ljóst sé hvaða einstaklingur er að skrá sig og hver er greiðandi. Haldið er utan um á hvaða viðburði viðkomandi mætti í þeim tilgangi að geta svarað fyrirspurnum um reikninga. Einnig er alltaf hægt að senda ósk um að eyða gögnum um sig á sky@sky.is (nema lögbundnum bókhaldsgögnum).

Tölvukerfi:
Tölvukerfi félagsins eru hýst í öruggu umhverfi hjá eða í gegnum Advania og Wise. Þar er átt við bókhaldskerfi/félagakerfi, tölvupóstkerfi og vefi Ský. 

Vinnsluskrá:
Félagið heldur utan um vinnsluskrá þar sem fram kemur hvaða upplýsingar eru vistaðar og hvernig öryggi þeirra er tryggt. 

Geymslutími:
Félagið leitast við að uppfylla lög og skyldur varðandi geymslutíma gagna svo sem bókhaldslög. 

Viðskiptavinir félagsins geta hvenær sem er óskað eftir upplýsingum um hvaða gögn eru vistuð og farið fram á leiðréttingu, eyðingu, andmæla vinnslu auk réttarins til að flytja eigin gögn. Þessi réttindi eru þó ekki alltaf til staðar. Þannig kunna lög að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið hafnað beiðni þinni vegna réttinda félagsins svo sem réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau réttindi vega þyngra. Ef upp koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni þinni mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.

Myndir:
Rétt er að nefna að teknar eru myndir/myndbönd á viðburðum félagsins og einnig mæta fjölmiðlar oft á viðburði. Gestir geta því átt von á að teknar séu myndir af þeim og birtar í tengslum við viðburði Ský.

Persónuverndarstefna Ský er endurskoðuð reglulega og uppfærð á vef félagsins.

Gildandi persónuverndarstefna gildir frá 28. febrúar 2022.
Síðast breytt 28. feb. 2022. Áður breytt 31. okt. 2018.

Fyrirspurnir eða ábendingar skal senda á netfang félagsins, sky@sky.is og svarar framkvæmdastjóri félagsins fyrir persónuverndarstefnuna.

----
Fulltrúi Ský í stjórn Persónuvernd

Skv. lögum 90/2018 málsgrein 38 um Persónuvernd á Skýrslutæknifélagið fulltrúa í stjórn Persónuverndar. Skipað er í stjórn af ráðherra í fjögur ár í senn.

Fulltrúar Ský:

2025-2030:
Jónas Sturla Sverrisson, aðalmaður
Guðrún Valdís Jónsdóttir, varamaður

2020-2025:
Þorvarður Kári Ólafsson, aðalmaður
Jónas Sturla Sverrisson, varamaður

2016-2020:
Þorvarður Kári Ólafsson, aðalmaður
Jónas Sturla Sverrisson, varamaður

2012-2016:
Sigrún Gunnarsdóttir, aðalmaður
Þorvarður Kári Ólafsson, varamaður

2008-2012:
Magnús Hafliðason, aðalmaður
Sigrún Gunnarsdóttir, varamaður

2004-2008:
...

2000-2004:
Guðbjörg Sigurðardóttir, aðalmaður

Afskrá af póstlista

Tölvupóstfangið hefur nú verið tekið af póstlista Ský.

Takk fyrir samfylgdina!

stelpur og taekni

"Girls In ICT Day" eða "Stelpur og tækni" dagurinn
eins og við höfum kallað hann var fyrst haldinn á Íslandi árið 2014.

Girls in ICT Day er haldinn víða um heim og styrktur af ITU (International Telecommunication Union) og Evrópusambandinu í tengslum við Digital Agenda. Um er að ræða alþjóðlegan dag og er haldið uppá hann víðsvegar fjórða fimmtudag í apríl ár hvert. Þar sem það hittir alltaf á frídag á Íslandi er valinn annar dagur nálægt fjórða fimmtudegi hér á landi og fleiri lönd í Evrópu halda daginn hátíðlegan annan dag en miðað er við.

Dagurinn heldur út sérstakri heimasíðu á Facebook og einnig er að finna upplýsingar um daginn hjá ITU.
Myndir frá viðburðinum hér á Íslandi má finna í myndasafninu á Facebook.

2024: Fimmtudaginn 23. maí 2024 heimsóttu um 1.200 stelpur og stálp Háskólann í Reykjavík og rúmlega 20 fyrirtæki innan tæknigeirans. 

2023: Mánudaginn 5. júní 2023  komu 736 stúlkur úr 9. bekkjum 26 grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu í vinnusmiðjur í HR og heimsóttu tæknifyrirtæki. 16 fyrirtæki tóku á móti hópum þetta árið sem voru Alvotech, Arion banki, Íslandsbanki, Marel, Miðeind, Origo, Rapyd, Sensa, Sidekick Health, Síminn, Syndis, Travelshift, Verkís og Össur

2022: Fimmtudaginn 19. maí 2022  var alþjóðlegi „Stelpur og tækni“ dagurinn (Girls in ICT Day) haldinn í níunda sinn hér á landi. Um 750 stelpur tóku þátt og heimsóttu HR og fóru í fyrirtækjaheimsóknir.

2021: Miðvikudaginn 19. maí 2021 var dagurinn haldinn í 8. sinn á Íslandi og með rafrænum hætti annað árið í röð. Um 800 stelpur í 9. bekk úr 40 skólum víðsvegar um landið tóku þátt. Sameiginlegri dagskrá var streymt til þátttökuskólanna og boðið upp á vinnustofur.

2020: Miðvikudaginn 20. maí 2020 var dagurinn að þessu sinni haldinn með rafrænum hætti vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Sameiginlegri dagskrá streymt til allra þátttökuskólanna og boðið upp á vinnustofur í vefsíðuforritun í Wordpress og tónlistarforritun í Sonic pi.

2019: Miðvikudaginn 22. maí 2019 komu tæplega 1.000 stelpur úr 9. bekk frá höfuðborgarsvæðinu í HR og 32 tæknifyrirtæki þar sem þær fengu að kynnast tækninámi og tæknistörfum.

2018: Stelpur og tækni fimmtudaginn 3. maí. Um 700 stelpur áttu frábæran dag og einnig fór vibðurðurinn fram fyrir vestan, austan og norðan.

2017: Fimmtudaginn 27. apríl 2017 tóku HR, Ský og SI á móti tæplega 400 stelpum úr skólum á höfuðborgarsvæðinu og fóru þær í vinnustofur og síðan í heimsókn til um 20 fyrirtækja. Einnig tóku stelpur á svæðinu í kringum Akureyri þátt síðar í maí og hugsanlega á Ísafirði.

2016: Ský, Háskólinn í Reykjavík og Samtök iðnaðarins standa fyrir þátttöku Íslands í alþjóðlega verkefninu "Girls in ICT Day"‪#‎GirlsInICT‬‪#‎StelpurOgTækni‬" og var hann haldin í 3ja sinn fimmtudaginn 28. apríl. Dagurinn fór þannig fram að yfir 400 stelpur úr 9. bekk fá tækifæri til að kynnast tölvu- og tæknistörfum hjá fyrirtækjum ásamt því að taka þátt í fróðlegum vinnustofum. 2016 komu um 400 stelpur úr 9. bekk og tóku þátt í deginum, bæði frá Reykjavík og Austurlandi. Um 20 tæknifyrirtæki tóku síðan á móti þeim í lok dags.

2015: Þriðjudaginn 28. apríl 2015 er dagurinn haldinn hátíðlegur í annað sinn af HR, Ský og SI. Dagskráin er með svipuðu sniði og í fyrra og mæta um 100 stelpur úr 9. bekk Hólabrekkuskóla, Árbæjarskóla, Fellaskóla og Ölduselsskóla á daginn. Byrjað er á vinnustofum í HR um þrívíddarprentun, heimasíðugerð myndaleit á vefnum.& Síðan fara hóparnir í heimsókn til tæknifyrirtækja og leysa stutt verkefni tengd tölvutækni. Í ár taka Meniga, Mentor, Betware og Tempo á móti stelpunum. Vonumst við til þess að allir njóti dagsins og sjái í leiðinni í hverju tölvugeirinn starfar

2014: Þriðjudaginn 30. apríl 2014 var Stelpu og tæknidagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Að honum stóðu HR, Ský, SI, Skema, /sys/tur, GreenQloud, Advania, Hugsmiðjan og Marorka, sem lögðu sitt af mörkum til þessa vel heppnaða verkefnis. Um 100 stelpum í 8. bekk var boðið frá Hörðuvallaskóla, Hlíðaskóla, Austurbæjarskóla, Garðaskóla og Laugalækjarskóla.

Ský í fjölmiðlum

Áhugaverðar upplýsingar um Ský
Ský er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Félagið er "non-profit" og miðast rekstur þess við það. Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni.

Hlutverk Ský er að bjóða uppá fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því öfluga þekkingar- og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins og veita þannig félagsmönnum sínum virðisauka og vegsemd.

Markmið Ský eru:
· að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri notkun hennar
· að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna
· að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni
· að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni
· að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni

Skýrslutæknifélag Íslands, í daglegu máli nefnt Ský, var stofnað af frumkvöðlum í tölvugeiranum þann 6. apríl 1968 og voru stofnfélagar um 100 talsins. Haldið hefur verið utan um sögu Ský af öldungadeild félagsins, sjá einnig Söguvefinn. Orðanefnd hefur starfað innan félagsins frá upphafi og félagið hefur gefið út tímaritið Tölvumál frá árinu 1976. Innan Ský starfa allmargir faghópar og eru félagar árið 2022 rúmlega 1.000.

Tengiliður við fjölmiðla
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský
Sími: 553-2460 / 861-2176

Einnig má hafa samband við stjórn Ský.