Verkefnastjórnun
Hádegisfundur 
9. desember kl. 12-14 á Grand hóteli
"Verkefnastjórnun"
Twitter: @SkyIceland #Verkefnastjornun
Jólafundurinn í ár fjallar um verkefnastjórnun frá ýmsum hliðum. Mörg stór verkefni eru unnin í hugbúnaðargerð þessi misserin og lykilatriði að aðferðum verkefnastjórnunar sé beitt til að halda utan um alla anga verkefnisins. Á fundinum verður fjallað um hvað er að gerast í fræðunum tengdum verkefnastjórnun ásamt því að sagðar verða reynslusögur af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð.
Að fundinum standa Skýrslutæknifélagið og Verkefnastjórnunarfélagið í sameiningu. Hvetjum alla sem koma að eða hafa áhuga á verkefnastjórnun í hugbúnaðargeiranum til að mæta á fundinn.
DAGSKRÁ:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40   Verkefnastjórnun - hvað ber framtíðin í skauti sér?
                        dr. Helgi Þór Ingason, prófessor í Háskólanum í Reykjavík
12:40-13:00   Endurnýjun grunnkerfa RB - með hagræðingu að leiðarljósi
                        Ingþór Guðni Júlíusson, forstöðumaður hjá Reiknistofu bankanna
13:00-13:20  Verkefnastjórnun í verkefnadrifnu fyrirtæki
                        Ásta Hildur Ásólfsdóttir, þróunarstjóri Hugvits
13:20-13:40   Forgangsröðun verkefna út frá stefnu fyrirtækis
                        Aðalbjörn Þórólfsson, deildarstjóri verkefnastýringar hjá Íslandsbanka
13:40-14:00   Áskoranir við verkefnastjórnun milli landa
                        Ásta Margrét Karlsson, verkefnisstjóri hjá LS Retail
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Laufey Ása Bjarnadóttir, formaður VSF
Undirbúningsnefnd: Theodór Ottósson, VSF og Arnheiður Guðmundsdóttir, Ský
Matseðill: Hunangsgljáð kalkúnabringa með gravy sósu, sætum kartöflum og grænmeti. Kaffi/te og konfekt á eftir.
Verð fyrir félagsmenn Ský/VSF:  5.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 8.900kr.
Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr. 
-             
    
        9. desember 2015
-             
    
        kl. 12-14
-             
    
        Grand hótel
 
            
                        
            
                             
            
                        
            
                             
            
                        
            
                             
            
                        
            
                            