Skip to main content

Viðskiptahugbúnaður

   

Jólaráðstefna Ský í ár verður um nýjungar í viðskiptahugbúnaði

Staður:              Gullteigur, Grand hótel                              
Stund:               Miðvikudagurinn 8. desember kl. 13 – 17

 

Þróun viðskiptahugbúnaðar og lausna þeim tengdum hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu ár. Þessum kerfum hefur fleygt fram vegna ýmissa þátta svo sem eins og vefkerfi hafa þróast, upptaka staðla og aukin áhersla í samfélaginu á á gagnsæi og ytra eftirlit.

Á ráðstefnunni verða teknar til skoðunar nokkrar vel þekktar nýjungar, bæði kerfi og hugmyndafræði sem þegar hefur sannað sig í íslensku umhverfi.  

Tilvalið tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að heyra reynslusögur af því sem er áhugavert í viðskiptahugbúnaði í dag. Að ráðstefnu lokinni verður jólastund þar sem hægt er að kasta jólakveðju á aðra í tengslaneti Ský.

Dagskrá:

13:00 – 13:10   Setning ráðstefnu

13:10 – 13:30   Saga viðskiptahugbúnaðar
Sigurður Bergsveinsson hjá Vigor

13:30 – 13:45   Nýjungar í viðmóti viðskiptahugbúnaðar
Gunnlaug Ottesen hjá HugAx

13:45 – 14:00   Rekstraráætlun í Orra
Stefán Kjærnested hjá Fjársýslunni

14:00 – 14:15   Kaffi

14:15 – 14:30   Þróun viðskiptagreiningar (BI)
Birkir Björnsson hjá Miracle  

14:30 – 15:00   Samþættinga kerfa
Skrifstofuvöndull - samþætting við  viðskiptabúnað
Magnús Ingi Stefánsson hjá Skýrr
Vefþjónusta banka
Hermann Þór Snorrason hjá Landsbankanum
Sambankaskema
Sigríður Helga Hermannsdóttir hjá Maritech                 

15:00 – 15:15   Hvað eiga kerfisleiga og tölvuský sameiginlegt ?
Gunnar Karl Nielsson hjá Microsoft

15:15 – 15:35   Kaffi

15:35 – 15:50   Þarfasti þjónninn
Árni Matthíasson hjá Morgunblaðinu

15:50 – 16:10   Framtíð viðskiptahugbúnaðar næstu árin
Arnaldur Axfjörð hjá Admon

16:10 – 16:15   Samantekt og lokaorð  - ráðstefnuslit

16:15 – 17:00   Jóladrykkur í boði Ský

Ráðstefnustjóri:  Frosti Bergsson hjá Opnum kerfum

Undirbúningsnefnd:  Sigrún Gunnarsdóttir, Stefán Kjærnested og Friðbjörn Hólm Ólafsson

Verð fyrir félagsmenn Ský                         9.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn                     11.500 kr.          
Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar       3.500 kr.

 


Vidskiptahugbunadur 01
Vidskiptahugbunadur 02
Vidskiptahugbunadur 03
Vidskiptahugbunadur 04

  • 8. desember 2010