Skip to main content

Fjarskipti á breiðum grunni

fyrirlesarar

Fjarskipti skipa æ stærri sess í íslensku samfélagi, farið verður yfir grunnþátt þeirrar þróunar sem orðið hefur á íslandi.

Er Nordunet stærsta fjarskiptakerfi sem enginn þekkir? Hver er þýðing IRIS fyrir samfélagið og hvers vegna er lagning hans mikilvæg.  Mobile World Congress, stærstu tæknisýningu í heimi lauk nýverið og við fáum að heyra af því markverðasta frá þeirri sýningu.

Dagskrá:

11:50   Húsið opnar

12:00   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20   Ljósleiðarinn 50 ára
Saga ljósleiðarans á Íslandi. Hvaða áhrif hafði þróun ljósleiðarans á fjarskipti.
Sæmundur E. Þorsteinsson, Háskóli Íslands

12:40   Nordunet
Hvað er Nordunet og Geant og hvernig nýtist það stofnunum?
Jón Ingi Einarsson, RHNet

13:10   IRIS og útlandasambönd
IRIS hóf að flytja umferð 1. mars síðastliðinn til Dublin. Hvaða þýðingu hefur ÍRIS fyrir íslenskt samfélag og hvað er framundan næstu árin hvað varðar útlandasambönd.
Örn Orrason, Farice

13:30   Mobile World Congress – Samantekt
MWC er ein stærsta og virtasta fjarskiptaráðstefna í heimi og er haldin árlega af GSMA í Evrópu, Bandaríkjunum, Asíu og Afríku.  Evrópuráðstefnan er þeirra stærst og hefur verið haldin í Barcelona síðustu árin og er óðum að ná fyrri styrk eftir COVID en ráðstefnan var ekki haldin 2020 og 2021.  Að þessu sinni heimsóttu um 100 þús gestir ráðstefnuna, þ.á.m. fulltrúar frá Nova, ásamt fjölda fyrirlesara, birgja og samtaka.
Ólafur Magnússon, Nova

13:50   Umræður og spurningar

14:00   Fundarslit

Fundarstjóri: Ragna Björk Ragnarsdóttir, Sýn


20230315 114211
20230315 123155
20230315 133608
20230315 133617
20230315 133627
20230315 133643
20230315 133704
20230315 133724
20230315 133746
20230315 133753
20230315 133759
20230315 135108
20230315 135402
20230315 140018

  • Félagsmenn Ský:     7.500 kr.
    Utanfélagsmenn:   13.500 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 5.500 kr.
  • Bláberjalegið lambalæri, blandað grænmeti, kartöflubátar og rósmarín
    Vegan: Blandað baunabuff með blönduðu salati og sesam vinaigrette
    Kaffi/te og sætindi á eftir