Skip to main content

Tölvumál

 Tolvumal haus nyr

 

Tímaritið Tölvumál kemur út í haust og óskað er eftir greinum í blaðið.

Þemað í ár er „Gervigreind“ í víðu samhengi.  Einnig er tekið við greinum um annað áhugavert efni tengdu tækni.

Skilafrestur greina er til og með 15. september 2023.

Greinar og fyrirspurnir skal senda á ritstjóra Tölvumála, Ástu Gísladóttur á netfangið asta@astriki.is eða sky@sky.is
Hér eru leiðbeiningar til greinahöfunda.

Alltaf er tekið við greinum fyrir Tölvumál á vefnum en þar birtist ný grein í hádeginu á fimmtudögum. Um að gera að senda á okkur ef þú ert að vinna í áhugaverðu verkefni.

Viltu taka þátt í starfi ritnefndar?
Alltaf er pláss fyrir gott fólk sem er vel tengt og getur aðstoðað við að útvega greinar og annað áhugavert efni. Það ekki er skilyrði að vera sérfræðingur í íslensku til að taka þátt í ritnefnd Tölvumála.

 

tolvumal haus

Skoðað: 785 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála