Heilbrigðisráðstefnan
Heilbrigðisráðstefna Fókus
18. febrúar kl. 13-16 á Grand hóteli
Rafræn teymisvinna 
– ný tækifæri í kjölfar samtengingar sjúkraskráa
Mikil hefur verið rætt og skrifað um samtengda sjúkraskrá á undanförnum árum og hafa nokkur stór skref verið stigin í þá átt á síðustu misserum. Á heilbrigðisráðstefnunni langar okkur til að horfa aðeins lengra fram á vegin og skoða hvernig megi byggja samskiptavettvang eða teymisvinnu með hjálp upplýsingatækninnar þvert á stofnanir, þar sem allir heilbrigðisstarfsmenn sem koma að meðferð einstaklings, auk einstaklingsins sjálfs, geta skipst á upplýsingum í stað þess að nota sjúklinginn sem sendiboða.
Dagskrá:
12:45 - 13:00 Afhending gagna
13:00 – 13:10    Setning
                          Birgir Jakobsson, Landlæknir
13:10 – 13:30    Samtengdar sjúkraskrár – Grunnurinn að dreifðum teymum            
                          Birgir Finnsson, TM Software
13:30 – 13:50    Loksins! - Rafræn mæðraskrá      
                          Guðrún Auður Harðardóttir, Embætti Landlæknis
13:50 – 14:10    Hreyfiseðill - rafræn eftirfylgd     
                          Auður Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Hreyfiseðla á Íslandi
14:10 – 14:40 Kaffihlé
14:40 – 15:00    Eftirlit með áhættuhópum            
                          Ingi Steinar Ingason, Embætti Landlæknis
15:00 – 15:20    Hvernig getur hugbúnaður stutt þverfaglega samvinnu innan heilsugeirans?               
                          Ósk Sigurðardóttir, Reynd
15:20 – 15:40  Sjúkraskráning og árangursvæðing heilbrigðisþjónustu 
                          Ófeigur T. Þorgeirsson, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
15:40 – 16:00 Umræður / Spurningar
Fundarstjóri: Valgerður Gunnarsdóttir, Velferðarráðuneytið
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghópsins Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisgeiranum.
Verð fyrir félagsmenn Ský:  10.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 15.900 kr.
Verð fyrir þátttakendur utan vinnumarkaðar: 5.000 kr.
-             
    
        18. febrúar 2015