Skip to main content

2011 UT-dagurinn

Ath. því miður féll niður fyrirlestur frá Borger.dk vegna eldgossins í Grímsvötnum.  
 

Ráðstefnan er haldin í tilefni af degi upplýsingatækninnar og verður athyglinni beint að vefgáttum opinberra aðila í dagskrá dagsins.

Yfirmaður Borger.dk, sem er þjónustuvefur danskra ríkisstofnana og sveitarfélaga, mun segja frá þróun hans og framtíðaráformum Dana um netþjónustu.

Einnig verður sagt frá nýjungum og breytingum á Ísland.is, en verkefnið fluttist til Þjóðskrár Íslands um síðustu áramót.

Opnuð verður ný Menntagátt, sagt frá framsæknum verkefnum hjá Hafnarfjarðarbæ og Reykjavíkurborg, fjallað um tæknina bak við tjöldin og kynnt áform um aukna samvinnu ríkis og sveitarfélaga um opinberar vefgáttir.

Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneyti,
Samband íslenskra sveitarfélaga og Skýrslutæknifélag Íslands.

              12:45 Afhending ráðstefnugagna

              13:00 Ávarp: Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra

                          13:15 Kvartett – þjónusta í boði Ísland.is

           Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Þjóðskrár Íslands

              13:40 Tæknin bak við tjöldin:

             „Er það eitthvað o’ná brauð?“ - Samvirkni í rafrænni þjónustu

           Arnaldur F. Axfjörð, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu 

              Rafræn framkvæmd almannatrygginga innan EES – 
           milli stofnana og yfir landamæri 

           Hermann Ólason, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs

 

           Sjálfvirkni og hagræðing í upplýsingatæknikerfum Reykjavíkurborgar

           Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar

14:25 Kaffi

                          14:55 Opnun nýrrar Menntagáttar Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra

            Kynning á nýrri Menntagátt

            Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá mennta-    
            og menningarmálaráðuneytinu

           Tryggvi Björgvinsson, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu

              15:20 Betri Reykjavík – Sjálfbært gegnsæi

           Hreinn Hreinsson, vefritstjóri Reykjavíkurborgar
           Gunnar Gestsson, Íbúar Samráðslýðræði

15:40 Frá vorskipum að tölvuskjánum
           Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar

              16:00 Ísland.is - tækifæri til samstarfs og framþróunar
                         Guðríður Arnardóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

              16:15 Ráðstefnuslit

 

         Ath. Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga eru hljóðupptökur af öllum fyrirlestrunum.


Ráðstefnustjóri: Arnar Þór Másson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu

Undirbúningsnefnd: Guðbjörg Sigurðardóttir – forsætisráðuneytinu, Anna G. Björnsdóttir –
Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Arnheiður Guðmundsdóttir – Skýrslutæknifélaginu,
Guðfinna B. Kristjánsdóttir – Garðabæ, Halla Björg Baldursdóttir – Þjóðskrá Íslands,
Hermann Ólason – Tryggingastofnun, Hjörtur Grétarsson – Reykjavíkurborg

  Verð fyrir félagsmenn Ský 9.500 kr.
  Verð fyrir utanfélagsmenn 11.500 kr.
  Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.500 kr.

 

Sýndarvæðing hugbúnaðar

 

Miðvikudaginn 11. maí kl. 12:00 - 14:00

Grand hóteli

 

 

Sýndarvæðing (e. virtualization) á innviðum tölvukerfa hefur farið mikið

vaxandi síðustu ár, en nú er hafin sýndarvæðing útstöðva og hugbúnaðar.

Í hverju felst þessi nýja sýndarvæðing og hver er ávinningurinn ?

Ráðstefna er hugsuð kerfisstjórum, tæknimönnum og þeim sem koma að ákvarðanatöku í innviðum UT-kerfa, auk annarra sem áhuga hafa á að fylgjast með framþróun á þessu sviði.

12:00 - 12:15 Videó – matur borinn fram

12:15 - 12:35 Um Sýndarvæðingu Útstöðva:

            Þróun möguleika fyrir UT deildir og notendur

            Guðmundur Arnar Þórðarson, Nýherja

 

12:35 - 13:10 Sýndarvæðing hugbúnaðar APP-V Skýrr

                        Gísli Guðmundsson, EJS / Skýrr

13:10 - 13:20 Sýndarvæðing hugbúnaðar MED-V Skýrr

                        Gísli Guðmundsson, EJS / Skýrr

13:20 - 13:40 Sýndarvæðing hugbúnaðar
                        Sigþór Örn Guðmundsson, Reykjavíkurborg

13:40 - 13:55 Hagrædd útstöð  (optimized desktop)

                        Jón Harry Óskarsson, Microsoft

Matseðill:  Blandaðir sjávarréttir með hrísgrjónum og fersku sumarsalati.  Nýbakað brauð

Kaffi/te og konfekt.

 

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar  3.000 kr.

Undirbúningsnefnd:  Bjarni Sigurðsson, Póst-og fjarskiptastofnun, Sigurður Friðrik Pétursson, Microsoft og Guðjón Karl Arnarson, Teris.

 

 

2011 Excel 2010 námskeið

Örnámskeið í Excel 2010

Staður:  Engjateigur 9, kjallari
Stund:   4. maí kl. 16:30 - 18:00

 

Farið verður í gegnum nýjungar í Microsoft Excel 2010.  T.d. Örrit, Pivot töflur til að vinna með stærri og smærri gagnasett. Einnig verður kynnt síða með yfir 1.000 kennslumyndböndum fyrir hinar mismunandi útgáfur af Microsoft Excel. Einnig verður sýnt samspil Microsoft Excel og ókeypis útgáfu af Microsoft Excel á netinu svo fátt eitt sé nefnt.

Kennari:  Gunnar Karl Níelsson, Microsoft

 Verð fyrir félagsmenn Ský 2.900 kr.
 Verð fyrir utanfélagsmenn Ský 4.900 kr. 
 Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar 1.500 kr.

 

 

 

 

 


Rafræn hjúkrunarskráning
– hvað er framundan?

Fundur á vegum Fókus,
faghóps um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu

- Aðgangur ókeypis -

Dagsetning:  Fimmtudaginn 7. apríl 2011, kl 16:30 -17:30

Staður:  Hringssalur Barnaspítalans

Mikil þróunarvinna hefur átt sér stað undafarin ár við að koma hjúkrunarskráningu  yfir á samræmt rafrænt form. Afrakstur þessarar vinnu er nú smám saman að koma í ljós. Breytingar sem framundan eru munu hafa veruleg áhrif á verklag hjúkrunarfræðinga við skráningu í klínísku starfi og skapa ýmis tækifæri varðandi nýtingu og miðlun upplýsinga milli heilbrigðisstarfsmanna.

Dagskrá:

16:30 – 16:55      „Hjúkrunarskráning á Reykjalundi – innleiðing   
                              hjúkrunarhluta sjúkraskrárkerfisins DIANA“

                              Jónína Sigurgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur BS, MS, gæðastjóri á Reykjalundi 

16:55 – 17:20      „Ný tækifæri með hjúkrunarskráningu í Sögu”

                               Herdís Gunnarsdóttir, hjúkrunar- og viðskiptafræðingur, MSc, MBA, verkefnastjóri á LSH

17:20 – 17:30      Umræður og spurningar

17:30                    Fundi slitið

Fundurinn er ókeypis og opinn öllum áhugasömum.  

Fundarstjóri:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur MSc, verkefnastjóri á Heilbrigðisstofnun Vesturlands og stjórnarmaður í Fókus.

Hádegisverðarfundur á Grand hóteli

5. apríl kl. 12 - 14

 

Þróun grunnneta á Íslandi til 2020

 

 

Flestir eru sjálfsagt sammála um að fjarskiptakerfi landsins séu ein af aðalundirstöðum þjóðfélagsins í dag.

Á fundinum verður leitast við að gefa mynd af stöðu fjarskiptaneta í dag og hver staðan gæti verið eftir  5 til 10 ár.  Jafnframt verður stutt umfjöllun um IPv6, en bráðlega verður búið að úthluta öllum IPv4 tölum eins og þekkt er.

Drög að dagskrá:

11:50 – 12:00          Afhending ráðstefnugagna

12:00 – 12:20          Fundur settur, Þórólfur Árnason
                                   Hádegisverður borinn fram

12:20 - 12:30           IPv6 vs IPv4 - hver er staðan og hvað gæti verið framundan 
                                   Jónatan Þór Jónasson, Sensa

12:35 - 13:45           Stuttar kynningar um stöðu grunnets viðkomandi og hvernig staðan                                   
                                   
gæti verið eða hvernig  menn vildu sjá hana í kringum 2020:
                                                - Netkerfi Fjarska, Bjarni M. Jónsson, framkvæmdastjóri
                                                - Netkerfi Vodafone, Pálmi Sigurðsson
                                                - Netkerfi Gagnaveitu Reykjavíkur, Magnús Salberg Óskarsson
                                                - Netkerfi Mílu, Halldór Guðmundsson, forstöðumaður þróunar
                                                - Veðurstofan útum allt land, Einar Indriðason, Veðurstofu Íslands
                                                - Öræfanetið - Fjarskiptafélag Öræfinga, Ingólfur Bruun

13:45 - 14:00            Umræður

Fundarstjóri: Þórólfur Árnason

Undirbúningsnefnd:  Fjarskiptahópur Ský

Matseðill: Heimabakað brauð. Smálúða m, hörpuskel og risarækja á basil lime sósu.
Kaffi /te og konfektmoli.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar  3.000 kr.