Skip to main content

Vefurinn og ferðaþjónustan

Hádegisfundur á grand hóteli
fimmtudaginn 14. janúar kl. 12-14

"Stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar og vefmálin þróast með" 
-Reynslusögur veffólks úr ferðaþjónustu-

Twitter: @SkyIceland #FerdaVefir

Eins og alkunna er hefur vöxtur í ferðaþjónustu á Íslandi verið mikill undanfarin ár og er ferðaþjónustan orðin stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. En hvar standa ferðaþjónustufyrirtæki þegar kemur að vefmálum? Hvernig eru fyrirtæki í ferðaþjónustu að nálgast vefmálin? Á þessum fundi leitum við svara hjá nokkrum aðilum úr ferðaþjónustu á Íslandi og heyrum reynslusögur þeirra.

Allir þeir sem áhuga hafa á vefmálum og ferðaþjónustu ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara.

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Ferðaþjónusta og vefmál
                        Frá sjónarhóli ráðgjafans  
                        Gunnar Thorberg Sigurðsson, Kapall

12:40-13:00   Hvert fóru allir?
                        Hvernig TripCreator hefur notað vefspjall og markvissa gagnaöflun til að bæta  flæði á vefnum og fjölga þannig virkum notendum
                        Bragi Þór Antoníusson, TripCreator

13:00-13:20   Frá bloggara til framkvæmdastjóra
                        Að byggja upp "stórveldi" með efnismarkaðssetningu, samfélagsmiðlum og örlítið af húmor
                        Auður Ösp Ólafsdóttir, I heart Reykjavík

13:20-13:40   Vefur í vinnslu…
                        Lærdómur frá 12 ára vefsögu
                        Hjalti Már Einarsson, Nordic Visitor

13:40-14:00   Pallborðsumræður

14:00              Fundarslit

Fundarstjóri: Daði Guðjónsson verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu

Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun
Matseðill: Kóriander og sítrus krydduð langa á fennel byggi borin fram með pestó jógúrtsósu. Konfekt og kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.


20160114 133012

  • 14. janúar 2016