Skip to main content

Hugbúnaðarráðstefnan - Plastpokar eru á útleið. Eru plastkortin næst?

Hugbúnaðarráðstefnan á Grand hóteli
21. nóv. kl. 12-14

Plastpokar eru á útleið. Eru plastkortin næst?

Twitter: @SkyIceland #Greidslulausnir

Viðfangsefni hádegisfundarins er nýjar og komandi greiðslulausnir. Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem vinna við eða hafa áhuga á viðskiptalegum og tæknilegum hliðum greiðslulausna. Margar lausnir, sem mögulega geta leyst reiðufé og greiðslukort af hólmi, ryðja sér nú til rúms. Hvernig verður greitt fyrir vörur og þjónustu og hvernig munu dagleg viðskipti fara fram með nýrri tækni og greiðslumöguleikum?

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Frá ferðatékkum til snjallsíma; hvað mun greiðslulausn framtíðar bjóða okkur upp á?
Er síminn milliskref yfir í enn fjölbreyttari valmöguleika til að greiða fyrir vöru og þjónustu. Eiga minni aðilar möguleika í baráttu risanna?
Sveinbjörn Snorri Grétarsson, Íslandsbanki

12:40-13:00   Sá á kvölina sem á völina
Vegagerð eða bílaframleiðsla?  Hverjir munu ráða för? Verður þetta hægfara þróun eða bylting?
Helgi Björn Kristinsson, framkvæmdastjóri ALVA

13:00-13:20   Posar – framtíðin?
Koma posar til með að hafa hlutverki að gegna í margbreytilegu umhverfi greiðslulausna framtíðarinnar?   
Daði Már Steinþórsson, Valitor

13:20-13:40   Þróun greiðslulausna
Að borga fyrir vöru og þjónustu með símanum. Hvert stefnum við í greiðslulausnum? Hvað vilja viðskiptavinir? Er öryggi fórnað fyrir nýjungar og þægindi? 
Guðlaug Guðmundsdóttir, Landsbankinn

13:40-14:00  Þetta snýst ekki um greiðsluna
Farið verður yfir hugmyndarfræðina á bakvið Pay lausnina frá Símanum
Gunnar Hafsteinsson, Síminn Pay

14:00             Fundarslit

Fundarstjóri: Ívar Logi Sigurbergsson, Advania

Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps um hugbúnaðargerð: Guðmundur Jósepsson hjá Miracle, Heiðar Karlsson hjá Advania og Björgólfur G. Guðbjörnsson hjá Origo
Einnig: Steinar J. Kristjánsson hjá Bónus, Hermann Þór Kristinsson hjá RFL  og Unnar Reynisson hjá Basko

Matseðill: Kryddhjúpaðar kjúklingabringur með kartöflusmælki, nípumauki, blönduðu grænmeti og estragon sósu. Kaffi/te og sætindi á eftir.

Verð
Félagsmenn Ský:    6.400 kr.
Utanfélagsmenn:  10.500 kr.
Aðilar utan vinnumarkaðar: 6.400 kr.

 


20181121 132127
20181121 132145

  • 21. nóvember 2018