Skip to main content

Óskum eftir greinum í blaðið

Tímaritið Tölvumál kemur út í lok október 🎉

Þema blaðsins í ár er „Stafræn þróun“ og allt sem því viðkemur til dæmis breytt starfsumhverfi, menntun, lagarammi, öryggi og gervigreind. Einnig er tekið við greinum um annað áhugavert efni tengdu tækni.

Lokaskil á greinum er til og með 1. september og hvetjum við þau sem luma á áhugaverðu efni að senda inn grein.

Greinar og fyrirspurnir skal senda á
sky@sky.is eða ritstjóra Tölvumála, Ástu Gísladóttur á netfangið asta@astriki.is

Hér eru leiðbeiningar um skil á greinum.

Vekjum athygli á að alltaf er tekið við greinum fyrir Tölvumál á vefnum þar sem ný grein er birt á hádegi á fimmtudögum. Um að gera að senda á okkur ef þú ert að vinna í áhugaverðu verkefni.

Viltu taka virkan þátt í starfi ritnefndar?
Alltaf er pláss fyrir gott fólk sem getur aðstoðað við að útvega greinar og annað áhugavert efni.

 

Skoðað: 30 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála