Gögn og gervigreind í fótbolta: Hvað segja gögnin og hvað ekki?
Fyrir rúmum mánuði síðan kláraðist fótboltasumarið hjá mér á nokkuð dramatískan hátt. Liðið mitt gerði jafntefli í lokaumferð og vegna óhagstæðra úrslita á öðrum vígstöðvum enduðum við í fallsæti og spilum í neðri deild á næsta ári fyrir vikið. Það sem situr eftir er auðvitað gríðarlegt svekkelsi og vonbrigði.
Þegar maður horfir til baka á tímabilið í heild sinni stendur ekki bara eftir sætið í töflunni, heldur einnig gögnin og tölfræði. Í dag er hægt að nálgast tölfræði um hvern einasta leik, leikmann og allar hans helstu aðgerðir í leiknum og allt er það dregið saman í eina einkunn fyrir leikinn. Sú tala getur sagt okkur heilmikið um frammistöðu leikmanns og hversu mikil áhrif hún hafði á úrslit leiksins. Það er hins vegar alveg jafn mikið sem hún segir ekki til um og getur ekki gert. Hvernig er þessi þróun gagna að breyta íþróttinni og hvað getur ein tala sagt til um heilt sumar?
Áður fyrr var tölfræði hérlendis af skornum skammti. Fólk var í vinnu við að telja hverja einustu sendingu og skottilraun, meta hvort aðgerðin væri heppnuð eða ekki og svo voru hlutföll tekin út frá því. Í dag eru Spiideo myndavélar á öllum völlum í efstu deildum bæði karla og kvenna megin. Upptökur af leikjum eru svo settar í gervigreindartól sem spýtir út allri mögulegri tölfræði sem beðið er um.
Stærsta þróunin er þó GPS-mælingar. Leikmenn klæðast vesti og í það er settur lítill kubbur sem getur mælt líkamlega frammistöðu, hreyfingarþætti og lífeðlisfræðilegt álag í rauntíma ásamt fleiru. Þessar hlaupatölur eru mikilvægur þáttur í að meta frammistöðu og álagsstýringu til dæmis.
Í sumar var ég til að mynda að hlaupa lengstu vegalengdina af öllum í liðinu í nokkrum leikjum þrátt fyrir að vera að spila stöðu sem ætti ekki að hlaupa mest miðað við það leikkerfi sem við vorum að spila. Þetta varð til þess að þjálfarinn fór að skoða hlaupin nánar og komst að því að ég væri að hlaupa of mikið til baka í vörn. Við fórum þá að æfa staðsetningar og hvernig við gætum spilað svæðavörn til að koma í veg fyrir að ég myndi hlaupa alla leið niður í öftustu línu að elta mótherjann. Þá gat ég verið sneggri í rétta stöðu sóknarlega og haft auka orku þegar líða fór á leiki.
Gervigreindin getur greint margt sem mannsaugað gæti ekki og hefur gefið smærri liðum sem fá minni umfjöllun og áhorf ákveðið svið til að sýna sig og leikmenn þeirra. En gervigreindin sér ekki allt.
Það eru ótal margir þættir sem geta haft áhrif á leiki og hvernig þeir spilast. Tökum xG sem dæmi, sú tölfræði metur hversu líklegt er að skot endi í marki. Hún tekur yfirleitt ekki inn í mengið veðuraðstæður, hvort leikmaður sé með gott sjálfstraust, þreytu og fleira. Tvö skot úr sömu stöðu fá sama gildi þrátt fyrir að aðstæður séu gjörólíkar.
Gervigreindin getur heldur ekki metið mikilvægi leikmanns út frá leiðtogahæfni og hvatningu sem hann gefur frá sér til samherja. Hlaup með bolta eru oft skoðuð en hvað með hlaupin án bolta? Hlaup geta opnað svæði fyrir liðsfélaga eða fært varnarmenn úr sínum stað til að skapa opnanir og tækifæri en nær gervigreindin að meta það? Það eru margir þættir sem þarf að hafa í huga þegar horft er til frammistöðu en mæling gervigreindarinnar er ekki röng, hún er bara ekki fullkomin.
Þetta kastar fram hugleiðingum um hvað gerist þegar leikmenn fara að spila fyrir tölfræðina. Lögmál sem er kennt við hagfræðinginn Charles Goodhart segir frá klassísku vandamáli við mælingar; þegar mælikvarði verður markmið hættir hann að vera góður mælikvarði. Hvað gerist þegar leikmenn hugsa of mikið um hlaupatölur? Að öllum líkindum fer leikmaðurinn að hlaupa meira en þýðir það að hann sé að hlaupa rétt? Rannsókn á þremur einkunnakerfum í fótbolta bendir til þess að sóknaraðgerðir vegi þyngra en varnaraðgerðir þegar kemur að einkunnagjöf (Ball o.fl., 2025). Leikmaður sem einbínir meira á varnarvinnu, sendingar og skilar framlagi sínu í staðsetningum og ákvarðanatöku frekar en skotum og mörkum, er líklegri til að fá lægri einkunn en framlag hans gefur til kynna. Það er því áhætta á því að leikmenn fari að passa upp á tölfræði sína.
Það getur litið vel út að leikmaður sé með hátt hlutfall heppnaðra sendinga, en er hann kannski að senda boltann bara til hliðar og forðast mistök í stað þess að reyna að skapa eitthvað? Ég hugsaði mjög oft út í einkunnir mínar og þegar líða fór á tímabilið vildi ég ólmur laga meðaleinkunnina. Kannski varð það til þess að ég tók færri áhættur, fór að spila passíft og uppskeran varð eftir því.
Gögn og tölfræði eru verkfæri og ættu að vera notuð sem slík. Skynsamir þjálfarar eru þeir sem nota verkfærin rétt. Sem betur fer tilheyrir það ekki sögunni að þjálfarar og njósnarar mæti á leiki og meti leikmann út frá eigin sjón og tilfinningu. Gögnin geta stutt við skoðanir þeirra og verið þeim öflugt tól.
Gögnin hafa breytt íþróttinni gífurlega og eru komin til að vera. Að mínu mati er þessi þróun til hins góða, leikmenn fá tækifæri á hlutlausri endurgjöf, þjálfarar hafa ný tól til þess að greina leikmenn sína sem og leikmenn annara félaga og áhorfandinn fær auknar upplýsingar sem hann getur notað eins og honum sýnist. Spurningin þarf því ekki að vera hvort við notum gögnin heldur hvernig. Hver ræður því hvað þau þýða og fá þeir sem eru mældir að taka þátt í þeirri umræðu? Einkunnin mín fyrir sumarið stendur eftir en það er svo önnur saga hvað hún segir um mig.
Höfundur: Rúnar Ingi Eysteinsson, nemandi við Háskólann í Reykjavík
Heimildaskrá
- Ball, J., Huynh, M., & Varley, M. C. (2025). Comparing player rating systems as a metric for assessing individual performance in soccer. Journal of Sports Sciences, 43(7), 676–686. https://doi.org/10.1080/02640414.2025.2471208
- Post, J. (2026, 29. ágúst). Sportmonks player ratings: A game-changing feature in football analytics. Sportmonks. https://www.sportmonks.com/blogs/player-ratings/
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

