Skip to main content

Er þetta heilbrigt?

Hádegisfundur á Grand hóteli 

15. apríl 2015 kl. 12-14

“Er þetta heilbrigt?”

Það hefur lengi verið á stefnuskrá stjórnvalda að þróa eina miðlæga þjónustugátt fyrir fólk og fyrirtæki. Samræmdur arkitektúr og samvirkni kerfa hefur líka verið lengi í deiglunni. Margir spyrja sig líka þeirra spurningar hvort ekki sé nóg að bjóða upp á eina leið til auðkenningar.

Við ætluðum að hafa eina þjónustugátt, en þær eru margar.

  • Við ætluðum að samræma gagnaþjónustur, en hver talar með sínu nefi.
  • Við ætluðum að samræma gögn, en gagnaflæði er óskipulagt.

Fundurinn fjallar um stöðuna eins og hún er í dag. Hvernig vinnum við úr þessari stöðu? Sjáum við bara vandamál eða eru tækifæri í stöðunni? Hvaða tækifæri eru til samvinnu?

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Það er val um auðkenningarleiðir. Nýr staðall til að meta áhættu.
                       Hörður Helgi Helgason, Landslög

12:40-13:00   Rafræn samskipti í heilbrigðisþjónustu
                        Birgir Finnson, TM Software

13:00-13:20   Er þörf fyrir millilag til að auka samvinnu og samvirkni kerfa?
                       Þorsteinn Sverrisson, Advania

13:20-13:40   Hvað er svona merkilegt við GOV.UK?
                       Björn Sigurðsson, forsætisráðuneyti

13:40-14:00   Allar þessar gáttir, hver eru vandamálin og hver eru tækifærin?
                       Hjörtur Grétarsson, Þjóðskrá Íslands

Fundarstjóri: Marta Kristín Lárusdóttir, Háskólinn í Reykjavík

Undirbúningsnefnd: FÓKUS, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu og Faghópur um rafræna opinbera þjónustu.

Matseðill: Buritos með nautastrimlum og grænmeti. Konfekt / kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.



  • 15. apríl 2015