Skip to main content
12. júní 2025

Andlát Anna Kristjánsdóttir

Anna KristjánsdóttirMinning um heiðursfélaga Ský.

Anna Kristjánsdóttir fæddist í Reykjavík þann 14. október 1941 og lést 9. apríl 2025.  

Hún lauk stúd­ents­prófi frá MR árið 1961, BA-gráðu í stærðfræði og sagn­fræði frá HÍ vorið 1967, og cand. pæd.-prófi í stærðfræði og upp­eld­is­fræði frá Kenn­ara­há­skóla Dan­merk­ur í Kaup­manna­höfn vorið 1972. Sam­hliða há­skóla­námi kenndi Anna stærðfræði við Haga­skóla og MH. Hún starfaði einnig hjá fræðslu­skrif­stofu Reykja­vík­ur auk þess að vera fram­kvæmda­stjóri Banda­lags ís­lenskra skáta.

Eft­ir að Anna kom heim úr námi starfaði hún áfram hjá fræðslu­skrif­stofu Reykja­vík­ur en varð síðar náms­stjóri í stærðfræði. Anna var ráðin lektor við Kenn­ara­há­skóla Íslands 1980 og varð dós­ent 1986. Hún var skipuð pró­fess­or í stærðfræðimennt­un árið 1991, fyrst allra á Norður­lönd­um, og varð síðar pró­fess­or við HÍ við sam­ein­ingu KHÍ og HÍ. Árið 2002 var Anna skipuð pró­fess­or í stærðfræðimennt­un við Högsko­len í Ag­der í Nor­egi, síðar Ag­der Uni­versity, og starfaði þar sam­hliða starfi við HÍ til starfs­loka 2011.

Anna Kristjánsdóttir var einn af þeim einstaklingum sem ruddu braut upplýsingatækninnar inn í íslenskt skólastarf af elju, framsýni og festu. Þrátt fyrir að hafa ekki starfað við hefðbundin upplýsingatæknistörf, mótaði hún djúp spor í því hvernig samfélagið – og sérstaklega menntakerfið – tók á móti tækninni.

Á áttunda og níunda áratugnum beindi Anna athygli sinni sérstaklega að því hvernig upplýsingatækni gæti orðið hluti af almennu skólastarfi. Hún hafði skýra sýn: tæknin ætti ekki aðeins við um sérfræðinga heldur almenning, og kennarar yrðu að vera hluti af þeirri þróun frá upphafi. Það sem einkenndi aðkomu Önnu var ekki bara tæknileg þekking heldur djúp hugsun um tilgang og áhrif tækninnar á nám, kennslu og samfélag.

Skýrslutæknifélagið, sem hafði þá þegar þróað mikilvæg tengsl við erlend samtök, átti í nánu samstarfi við Önnu – bæði sem ráðgjafa og verkstjóra. Hún sat í undirbúningsnefnd Ský og menntamálaráðuneytisins fyrir fyrstu fjölþjóðlegu ráðstefnuna um upplýsingatækni og menntun sem haldin var á Íslandi árið 1983, „EDB og skolepolitik“, og stjórnaði henni að þegar formaður dagskrárnefndar veiktist. Sú ráðstefna markaði tímamót í íslensku skólastarfi og var upphaf að öflugri tengingu fræðimanna, kennara og stefnumótenda milli landa.

Önnu var boðið að taka sæti í International Federation for Information Processing (IFIP) en það eru elstu heildarsamtök um upplýsingatækni í víðasta skilningi og sat hún þar sem fulltrúi Íslands á vegum Skýrslutæknifélag Íslands. Hún tók virkan þátt í starfi menntamálanefndar samtakanna, WG31, og sat í alþjóðlegum dagskrárnefndum og kom að skipulagningu ráðstefna og rannsóknarverkefna. Hún beitti sér einnig fyrir því að fleiri Íslendingar tækju þátt í alþjóðlegu samstarfi, og efldi þannig tengsl Ský við alþjóðlegt fagfólk og rannsóknasamfélag.

Eitt stærsta verkefni Önnu í samstarfi við Ský og IFIP var alþjóðleg ráðstefna sem haldin var á Íslandi sumarið 1989 undir yfirskriftinni Educational Software at Secondary Level in and out of School. Hún átti frumkvæði að hugmyndinni, stjórnaði undirbúningi og sat í alþjóðlegri dagskrárnefnd. Í kjölfar ráðstefnunnar var henni boðið persónulega sæti í menntamálanefnd IFIP – mikil viðurkenning fyrir brautryðjendastarf hennar.

Í störfum sínum fyrir Skýrslutæknifélagið og í alþjóðlegu samstarfi lagði Anna stöðugt áherslu á mikilvægi gagnkvæmra samskipta: að Ísland tæki við þekkingu annarra en miðlaði einnig af eigin reynslu og nýbreytni. Hún var óþreytandi í því að kynna íslensk þróunarverkefni erlendis og tryggja að íslenskir kennarar og fræðimenn hefðu rödd á alþjóðavettvangi.

Anna var leiðtogi með sterka framtíðarsýn, fræðimaður með djúpan skilning á áhrifum tækninnar og kennari af lífi og sál. Hún sat í stjórn Skýrslutæknifélags Íslands frá 1987 -1994, lengst af sem varaformaður. Hún kom einnig að stofnun nýs faghóps Ský um menntun, fræðslu- og fræðistörf í UT árið 2013 og sat í stjórn hans fyrstu 3 árin.  Fyrir störf sín var hún útnefnd heiðursfélagi Skýrslutæknifélags Íslands á aðalfundi félagsins þann 28. febrúar 2013. Skýrslutæknifélag Íslands þakkar henni fyrir vel unnin störf.

Skoðað: 29 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála