Skip to main content
25. júní 2026

Gleðilegt sumar, sjáumst í haust!

 

sumar2026Óskað er eftir greinum í tímaritið Tölvumál sem kemur út í haust og er þema blaðsins „Stafræn þróun“ og allt sem því viðkemur.

Notið sumarið til að skrifa grein fyrir Tölvumál 😉

Greinar og fyrirspurnir skal senda á sky@sky.is eða ritstjóra Tölvumála, Ástu Gísladóttur á netfangið asta@astriki.is
Lokaskil eru til og með 1. september og hér eru leiðbeiningar um skil á greinum.

Alltaf er tekið við greinum fyrir Tölvumál á vefnum þar sem ný grein er birt á hádegi á fimmtudögum og svo er nýtt fólk ávalt velkomið í ritnefndina.

Skoðað: 20 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála