Áskriftarleiðir nútímans
Áskriftir í daglegu lífi
Hvað mun gerast þegar flest allt sem við notum í daglegu lífi er orðið að áskrift. Streymisveitur, líkamsræktarstöðvar, tölvuleikir og hugbúnaður á borð við Microsoft Office eru dæmi um áskriftir sem við erum orðin vön að borga fyrir. Nú til dags er einnig hægt að vera áskrifandi að vítamínum, heimsendingum á matvörum og ákveðnum eiginleikum í tölvukerfum bifreiða.
Það sem áður var keypt einu sinni og notað þar til það varð úrelt er núna í auknum mæli hluti af þjónustu sem þróast stöðugt og getur breyst eftir kaup. Það er víst ekki alltaf nóg að kaupa hlutinn til að fá aðgang að öllum eiginleikum hans, heldur þarf stundum að greiða mánaðarlega bara til að hluturinn virki. Þetta er kannski gott tekjumódel fyrir fyrirtækin sjálf, en er þetta sú þróun sem hinn venjulegi neytandi vill sjá?
Af hverju er þróunin svona
Stafræn þróun hefur auðveldað fyrirtækjum að uppfæra hugbúnað stöðugt í stað þess að þurfa að vinna að og gefa út nýja útgáfu í hvert skipti sem breytingar eru gerðar á hugbúnaðinum. Stöðugar uppfærslur auka samkeppnishæfni fyrirtækja og áskriftarlíkanið virkar vel samhliða þessari þróun. Helsti kostur líkansins fyrir fyrirtækin er að greiðslur eru nokkuð stöðugar og fyrirsjáanlegar ásamt því að hægt er að fylgjast betur með því hvernig þjónustan er notuð og hvað notendunum sjálfum finnst (Forbes Business Council, 2024). Bílaframleiðendur geta til dæmis notað Over-the-Air (OTA) hugbúnaðaruppfærslur til að bjóða eigendum bifreiða upp á nýja eiginleika, löngu eftir að bíllinn hefur verið seldur. Hiti í sætum, WiFi og lane-keeping assist eru dæmi um eiginleika sem hægt er að vera áskrifandi að. Gróðamöguleikarnir geta virst nánast endalausir þegar það er hægt að bæta við eiginleikum og breyta þeim með nettengingunni einni.
Rannsókn sem gerð var í apríl 2022 sýndi samt að aðeins um 25% kaupenda væru tilbúnir til borga reglulega fyrir aðgang að ákveðnum eiginleikum, sem gefur í skyn að hér séu möguleikar á að útfæra áskriftina betur (Levin, 2022). Þegar bílaframleiðendur hylja ákveðna eiginleika á bak við áskriftarvegg getur notandinn upplifað að hann sé að borga tvisvar fyrir vöruna.
Kostir og gallar fyrir neytandann
Áskriftarlíkanið hefur ýmsa kosti fyrir neytendur sem fá reglulegar uppfærslur með nýjum eiginleikum. Að mínu mati er einn helsti kostur áskriftar sá að það er hægt að segja henni upp án fyrirvara. Það er líka svo auðvelt að setja upp ýmis konar áskriftir en það tekur oftast ekki nema örfár mínútur. Gallar líkansins koma hins vegar betur í ljós þegar áskriftum fjölgar. Samanlagður kostnaður mismunandi áskrifta getur verið gríðarlega hár og þá getur líka verið auðvelt að gleyma áskriftum sem endurnýja sig svo sjálfkrafa með tilheyrandi kostnaði. Þessi breyting vekur upp spurningu um eignarhald. Þegar maður kaupir vöru getur maður notað hana þar til hún klárast eða hættir að virka. Með áskrift er notkunin hins vegar háð áframhaldandi greiðslum, og jafnvel nettengingu, en áskriftin er í raun aðeins tímabundinn aðgangur sem fyrirtækin geta lokað fyrir.
Áskriftir framtíðarinnar
Áskriftarlíkanið virðist vera orðið fastur hluti af stafrænu samfélagi og ólíklegt er að það hverfi á næstunni. Eftir því sem fleiri vörur og þjónustur verða nettengdar og hugbúnaðarstýrðar verður auðveldara að bæta við eiginleikum eftir að vara hefur verið seld. Það má því búast við því að áskriftir nái til fleiri sviða í framtíðinni. Kostir og gallar áskriftarlíkansins vega nokkuð jafnt að mínu mati. Fyrirtæki þurfa samt að vanda sig við að finna jafnvægi á milli þess að nýta þá möguleika sem stafræn þróun býður upp á og að bjóða neytendum þjónustu sem þeir eru tilbúnir til þess að greiða fyrir. Áskriftir eru því gott dæmi um hvernig stafræn þróun breytir ekki aðeins tækninni heldur einnig hvernig greitt er fyrir hana. Neytendur eru orðnir kröfuharðari. Þeir búast við reglulegum uppfærslum og bættum eiginleikum og kippa sér oft ekki mikið upp við það að bæta við sig fleiri áskriftum. Spurningin er kannski ekki lengur hvort fleiri hlutir verði að áskrift heldur hvenær það gerist.
Höfundur: Ástrós Eva Aðalbjörnsdóttir, nemandi við Háskólann í Reykjavík
Heimildir
- Forbes Business Council. (2024, 3. september). The Rise of Subscription-Based Business Models. https://councils.forbes.com/blog/the-rise-of-subscription-based-business-models
- Levin, T. (2022, 21. nóvember). Car companies want to make billions by charging monthly fees for features like heated seats, but buyers won‘t pay up. Business Insider. https://www.businessinsider.com/car-feature-subscriptions-add-ons-bmw-ford-toyota-gm-2022-2
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

