Þarf allt að vera app? Hvenær auðvelda öpp daglegt líf og hvenær verða þau hindrun?
Í dag er hægt að gera ýmislegt í gegnum snjallsímann og sinna daglegum erindum. Við getum til dæmis farið í heimabankann, bókað borð á veitingastað, greitt fyrir bílastæði og verslað föt. Smáforrit eða öpp geta sparað tíma, aukið þægindi og gert þjónustu aðgengilegri. Aftur á móti fylgir þeim oft ákveðin fyrirhöfn. Áður en hægt er að nýta þjónustuna þarf að hlaða niður appinu, stofna aðgang og skrá greiðsluupplýsingar. Þá vaknar upp sú spurning: hvenær auðvelda öpp daglegt líf og hvenær skapa þau fleiri hindranir? Þarf hvert einasta erindi sérstakt app?
Þegar öpp auðvelda lífið
Öpp geta verið afar þægileg og gagnleg þegar þau mæta þörfum notenda. Bankaöpp gera okkur kleift að fylgjast með stöðu reikninga, millifæra og greiða reikninga án þess að fara í útibú. Einnig eru margar fataverslanir komnar með app þar sem hægt er að skoða og versla flíkurnar sem eru til sölu. Þetta getur verið sérstaklega þægilegt þegar verslunin er langt frá viðskiptavininum, til dæmis í öðru landi. Við getum sinnt erindum sjálf þegar okkur hentar í stað þess að þurfa að stóla á opnunartíma eða bíða eftir aðstoð starfsfólks.
Þannig geta öpp bæði sparað okkur tíma og veitt meira sjálfstæði. Bílastæðaöpp geta til dæmis einnig verið þægileg þegar greiðsluvél er ekki sjáanleg. Ef appið er uppsett og greiðsluupplýsingar skráðar getur afgreiðslan verið einföld.
Þegar skrefum fjölgar
Þó svo að hvert skref sé einfalt eitt og sér getur heildarferlið sjálft orðið flókið eða tímafrekt. Hvert app er misflókið að setja upp og gæti notandinn þurft að sækja eða hlaða niður appi, stofna aðgang, velja lykilorð, slá inn staðfestingarkóða, skrá greiðsluupplýsingar og að lokum muna innskráningarupplýsingar.
Það er réttlætanlegt að öpp sem geyma persónulegar upplýsingar, svo sem tölvupóstsöpp eða bankaöpp, krefjist innskráningar. Hins vegar getur það skapað óþarfa fyrirhöfn þegar þjónustan er sjaldan notuð og ekki jafn persónuleg. Sum öpp krefjast þess að notendur skrái sig inn áður en þeir geta nýtt appið eða skoðað upplýsingar um þjónustuna sem er í boði (Budiu, 2014). Ein greiðsla getur því krafist mun meiri undirbúnings en notandinn bjóst við og þá vaknar upp sú spurning hvort fólk einfaldlega nenni öllu ferlinu fyrir þessa einu greiðslu eða gefi sér tíma í það. Munurinn á þægindum og veseni liggur meðal annars í því hversu oft þjónustan er notuð. Fyrir þann sem þarf aðeins að nýta sér þjónustuna einu sinni þá getur skráningarferlið verið tímafrekt en fyrir þann sem notar appið daglega getur það sparað heilmikinn tíma.
Stafræn þjónusta og þegar öpp verða hindrun
Svo hægt sé að nota app þarf tæknin að virka þegar á henni er þörf. Síminn þarf að vera með næga rafhlöðu og nægilega nýtt stýrikerfi til þess að geta keyrt appið. Ef þjónustan þarf netsamband verður tengingin að vera til staðar. Rafmagnslaus sími eða léleg nettenging getur því orðið hindrun.
Atvik átti sér stað eitt mánudagskvöldið þar sem Tesla-appið lá niðri í margar klukkustundir. Margir eigendur nota appið sem lykil að bílnum og komust þeir ekki inn í bíla sína þegar það lá niðri og urðu strandaglópar. Þegar mikilvægar aðgerðir eru háðar appi þarf að vera önnur leið til að framkvæma þær ef appið bregst (Case, 2019).
Fólk með takmarkaða stafræna færni, þar á meðal sumt eldra fólk, getur þurft aðstoð við niðurhal, innskráningu og greiðslur og vill frekar nýta aðrar afgreiðsluleiðir. Ef app er eina leiðin að þjónustunni getur það skapað hindranir.
Árið 2025 skorti 40% fólks í Evrópusambandinu á aldrinum 16-74 ára að minnsta kosti grunnfærni á stafrænu sviði. Einnig kom fram að 61% netnotenda á aldrinum 65-74 ára hafi notað netbanka, samanborið við 78% þeirra sem voru á aldrinum 25-64 ára. Þessar tölur vísa til netbankanotkunar almennt en greina ekki á milli vefsíðna og bankaappa (Eurostat, 2026). Tölurnar sýna að ekki er hægt að gera ráð fyrir að allir nýti sér stafræna þjónustu.
Þarf þjónustan app?
Áður en ákveðið er að þróa app ætti að skoða hvort það sé besti kosturinn fyrir notendur. App getur hentað vel þegar þjónustan krefst sérstakrar virkni tækisins eða þarf að geta safnað og geymt gögn án stöðugs netsambands (Government Digital Service, 2019). Þó notendur kunni vel að meta þá möguleika og þægindi sem fylgja öppum má ekki gleyma kostnaðinum við bilanir (Case, 2019).
Mér finnst mjög sniðugt að hægt sé að nálgast ýmiss konar þjónustu í öppum en sérstakt app er ekki alltaf nauðsynlegt. Fyrir þá einstaklinga sem nota þjónustuna oftar en einu sinni og eiga auðvelt með tæknina þá gætu öppin aukið þægindin til muna. Mér finnst samt mjög mikilvægt að tekið sé tillit til allra einstaklinga í samfélaginu þar sem það eru margir sem hafa takmarkaða kunnáttu. Því er ekki hægt að gera ráð fyrir að app sé besta lausnin fyrir alla. Fyrirtæki gætu því boðið upp á fleiri leiðir til að nýta þjónustuna, svo sem greiðslu á vefsíðu, greiðsluvélar, símaþjónustu eða afgreiðslu á staðnum. Einnig skiptir miklu máli að leiðbeiningar séu skýrar og að auðvelt sé að fá aðstoð.
Niðurstöður
Umfjöllunin sýnir að öpp geta auðveldað daglegt líf en ávinningurinn ræðst af aðstæðum og þörfum notenda. Markmið appa ætti að vera að gera þjónustuna einfaldari og aðgengilegri. Þegar niðurhal og innskráning verða stærri hluti af erindinu en þjónustan sjálf er ástæða til að spyrja hvort sérstakt app sé nauðsynlegt.
Notkun gervigreindar
Ég notaði gervigreind bæði til að fá hugmyndir að umfjöllunarefni og til þess að fara yfir málfar og stafsetningu.
Höfundur: Hrafnhildur Davíðsdóttir, nemandi við Háskólann í Reykjavík
Heimildaskrá
- Budiu, R. (2014, 2. mars). Login walls stop users in their tracks. Nielsen Norman Group. https://www.nngroup.com/articles/login-walls/
- Case, A. (2019, 17. september). The appification of everything & why it needs to end. Medium. https://caseorganic.medium.com/the-appification-of-everything-why-it-needs-to-end-8a2214c1968f
- Eurostat. (2026). Digitalisation in Europe – 2026 edition. https://ec.europa.eu/eurostat/web/interactive-publications/digitalisation-2026
- Government Digital Service. (2019, 10. maí). Making sure your service works well on mobile. GOV.UK. https://www.gov.uk/service-manual/technology/working-with-mobile-technology
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

