Læknar hafa nú flestir aðgang að lyfseðlaskránni ýmist í gegnum vefsíðu eða í gegnum sjúkraskrárkerfi. Einstaklingar hafa nú einnig fengið aðgang að lyfseðlaskránni í gegnum vefinn heilsuvera.is. Hvað vantar þá uppá til að við séum með eitthvað sem kalla mætti miðlæga lyfseðlaskrá? Á fundinum förum við yfir það sem við höfum í höndunum í dag með lyfseðlaskrá landlæknis, fáum að heyra framtíðarsýn EL hvað varðar miðlægt lyfjakort og að lokum að heyra hvernig Norðmenn hafa nálgast þetta sama verkefni.
Dagskrá:
12:00-12:20 Léttar veitingar í boði TM Software
12:20-12:40 Hvar erum við nú Guðjón Vilhjálmsson, TM Software
12:40-13:00 Framtíðarsýn embættis landlæknis Ingi Steinar Ingason, embætti Landlæknis
13:00-13:20 Miðlægt lyfjakort í Noregi Ægir Örn Leifsson, Thula
Undirbúningsnefnd: Arna Harðardóttir, Guðjón Vilhjálmsson, Hjörleifur Halldórsson, Hjörtur Sturluson, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Smári Kristinsson, Stefán Stefánsson Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og frítt inn á meðan húsrúm leyfir.
Dagur upplýsingatækninnar (UT-dagurinn) hefur verið haldinn árlega frá árinu 2006 af stjórnvöldum. Tilgangur dagsins er að fjalla um það sem er efst á baugi hverju sinni hjá stjórnsýslunni. UT-dagurinn 2014 er tileinkaður þeim verkefnum sem eru í gangi skv. upplýsingatæknistefnu stjórnvalda og eru á framkvæmdastigi.
14:15-14:35 Hagræðing, skilvirkni og sjálfbærni: Rafrænir reikningar um áramót - mikilvægt skref til hagræðingar með rafrænum viðskiptum Hjörtur Þorgilsson, formaður Icepro
16:30-16:50 Fjarskipti: Árangur í fjarskiptum Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs
Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytissstjóri í innanríkisráðuneyti
Verð fyrir dagskrá UT-dagsins eftir hádegið: Félagsmenn Ský: 10.500 kr. Utanfélagsmenn: 15.900 kr.
Gestum UT-dagsins býðst að taka þátt í fræðslufundi á undan UT-deginum um upplýsingaöryggi á opinberjum vefjum en gestir þurfa að skrá sig sérstaklega á hann um leið og skráning á UT-daginn fer fram
Innanríkisráðuneytið stendur fyrir fræðslufundi í þeim tilgangi að efla varnir opinberra vefja, ríkis og sveitarfélaga, gegn hvers kyns tölvuárásum. Tölvuárásir eru stöðugt að aukast og eru nú orðnar alvarleg ógn við fyrirtæki og opinbera aðila. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við opinbera vefi öðlist skilning á helstu áhættuþáttum og hvernig hægt sé að bregðast við þeim.
Á fundinum verður fjallað, á einfaldan hátt, um öryggismál, hvað beri að varast og hvernig hægt sé að auka öryggi vefja. Í vefhandbókinni sem er á vefnum ut.is er ítarlegt efni um öryggi opinberra vefja og verður stuðst við það efni.
Meðal þess sem verður tekið fyrir er: - Hvaða öryggisþætti þarf að hafa í huga við val á vefumsjónarkerfum, hýsingar- og þjónustuaðilum. - Stjórnun aðgangs - Öryggisafritun - Mikilvægi öryggisprófana á veflausnum
Einnig verður farið yfir sjálfsmat varðandi öryggismál sem vefstjórar geta framkvæmt sjálfir og fyrirhugaðar mælingar á öryggi opinberra vefja í næstu könnun, Hvað er spunnið í opinbera vefi 2015? Hvatt er til spurninga og umræðna á fundinum.
Fræðslufundurinn byrjar stundvíslega kl. 10:30 Hádegisverður er innifalinn og verður borinn inn á meðan á fundinum stendur kl. 12.
Matseðill:Ítalskt lasagnia með basilpesto, tómatsalati, rauðlauk hvítlauksbrauði og parmesan.
Leiðbeinandi verður Svavar Ingi Hermannsson, sérfræðingur í tölvuöryggi.
Fræðslufundurinn er án endurgjalds fyrir ráðstefngesti á UT-degi en gestir þurfa að skrá sig fyrirfram á fundinn og UT-daginn.
Ef einungis er mætt á fræðslufundinn þarf að greiða inná hann: Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr. Verð fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Hádegisfundur á Grand hóteli 19. nóvember 2014 kl. 12-14
“Þróun þráðlausra samskiptalausna”
Twitter: @SkyIceland #thradlaus
Nútíma farsímatækni fleygir fram eins og margir ættu að þekkja. Fyrir innan við 10 árum þótti 3G farsímatæknin allt of dýr til að lítið land á við Ísland myndi standa í uppbyggingu á slíkri tækni. Eitt símafélag reið á vaðið með uppbyggingu á 3G og annað félag fylgdi fast á eftir. Ekki tíu árum síðar eru alls 4 símafélög með úthlutað tíðnileyfi til að byggja upp arftaka 3G farsímatækninnar; 4G! Símaþjónustu, netþjónustu og sjónvarpsþjónustu í farsímann þekkja flestir ef ekki allir.
Á hádegisfundinum er ætlunin að kynna ögn önnur tækifæri og aðra möguleika í nýtingu farsímatækninnar í atvinnulífinu almennt. Hvernig er verið að nýta farsímatæknina nú þegar fyrir utan hefðbundnu þjónusturnar (far)síma, net og sjónvarp.
Fyrir alla sem áhuga hafa á hagnýtri nýtingu nútíma farsímatækni.
Dagskrá:
11:50-12:05Afhending gagna
12:05-12:20Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40Er hægt að borga með símanum? Skoðað verður hvernig hægt er að nota snjallsíma sem greiðslukort í stað hefðbundinna greiðslukorta úr plasti. Hvaða tækni þarf að koma til og hvaða leiðir eru í boði? Borgar Erlendsson, Valitor
12:40-13:00Undirskriftir og rafræn auðkenning Fjallað verður um rafræn skilríki til auðkenninga og undirritana. Mismunandi leiðir eru til auðkenninga og eru rafræn skilríki á farsíma þar ört vaxandi. Rafrænar undirritanir eru orðnar mikilvægur þáttur í rafrænum viðskiptum í nágrannalöndum okkar og felast í þeim mikil tækifæri til lækkunar viðskiptakostnaðar. Á Íslandi eru dæmi um notkun rafrænna undirritana en búast má við að notkun þeirra vaxi ört á næstu árum. Haraldur Bjarnason, Auðkenni
13:00-13:20Rauntímaferilvöktun Farið verður yfir raunverulegt dæmi um rauntímaeftirlit með hitastigi og staðsetningu sendinga. Í dæminu er íslenskur hugbúnaður, vélbúnaður og þjónusta nýtt til að leysa áskoranir sem fylgja eftirliti og flutningum á viðkvæmum eða verðmætum varningi. Jón Birgir Gunnarsson, Controlant og Freyr Hólm Ketilsson, Vodafone
13:20-13:40Rafrænar undirritanir, aukin þægindi Fullgild rafrænar skilríki opna nýjan heim tækifæra í viðskiptum og rekstri fyrirtækja. Með því að nota rafræn skilríki til innskráninga og undirrituna er hægt að taka næsta skrefið í pappírslausu umhverfi en einnig tryggja aðgengi að upplýsingum og samskiptum óháð stað og stund. Óskar Þór Þráinsson, AZAZO
13:40-14:00Snjallsímagreiðslulausn Pyngjan er app sem er hluti af snjallsímagreiðslulausn. Í erindinu verður fjallað um uppbyggingu og virkni kerfisins. Dagný Halldórsdóttir, Pyngjan
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Snorri Petersen, Landsbankinn Undirbúningsnefnd: Gunnar Bachmann Hreinsson, Efla verkfræðistofa og Theodór Carl Steinþórsson, Vodafone
Matseðill: Kjúklingabringa með sveppa og pekanhnetufyllingu, spínati, grænmeti og portvínssósu. Konfekt / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr. Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr. Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
Hugbúnaðarráðstefna Ský miðvikudaginn 12. nóvember á Grand hóteli kl. 13:00 - 17:00
"Er JavaScript málið?"
Twitter: @SkyIceland #ErJSmalid
JavaScript (JS) var hannað sem forritunarmál fyrir vefinn. Þrátt fyrir mikla gagnrýni hafa vinsældir JS aldrei verið meiri og þróunin það hröð að erfitt getur reynst að fylgjast með. Hver er ástæðan fyrir nýlegum vinsældum JS? Á ráðstefnunni verða kynntar ýmsar nýjungar sem tengjast JS og þær skoðaðar í gagnrýnu ljósi. Ráðstefnan er fyrir alla þá sem hafa skoðun á því hvort JavaScript sé málið.
PS: Það verða sýndir þyrludrónar fjarstýrðir með JavaScript, videó um rapid prototyping og Oculus Rift!