Skip to main content

Innri samskiptamiðlar

Jóla-hádegisfundur á Grand hótel þriðjudaginn
10. desember kl. 12-14

Samvinna starfsmanna með innri félagsmiðlum
og aldamótakynslóðin
(e. Enterprise Social Networking and the Millenials)

Twitter: @SkyIceland #InnriMidlar

 

Aldamótakynslóðin er stór áhrifavaldur í þróun innri kerfa fyrirtækja og má rekja nýjar vinnuaðferðir til yngra fólks sem kemur á vinnumarkaðinn með aðra sýn og kröfur  en hefur verið við lýði áður. Nú þegar hafa komið fram ýmsar lausnir sem eiga það sameiginlegt að styðja þessa nýju hugmyndafræði, en hvað er það sem aðgreinir þessar lausnir frá hefðbundnum innri vefjum, og hvernig getum við lært af sögunni og styrkt komandi innleiðingar ?

Hvetjum alla sem hafa áhuga á framþróun og nýjum samskiptaleiðum innan fyrirtækja til að koma og hlýða á fróðlega fyrirlestra og nota í leiðinni tækifærið til að kasta jólakveðju á vini og kunningja  í tölvugeiranum.

Dagskrá:

11:50-12:05       Afhending gagna

12:05-12:20      Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40      Enterprise social og Yammer
                                Guðmundur Freyr Ómarsson, Microsoft Ísland

12:40-13:00      Saga af Yammer
                                Einar Geir Jónsson, Íslandspóstur

13:00-13:20      Hvað er sameiginlegt með Social Business og Bring Your Own Device?
                                Snæbjörn Ingi Ingólfsson, Nýherji

13:20-13:40      Hvernig RB sameinar Wiki, innri félagsmiðil og vef með Confluence
                                Guðmundur Tómas Axelsson, Reiknistofa Bankanna

13:40-14:00      Samskiptavettvangur í CoreData og aðrir miðlar
                                Gunnhildur Manfreðsdóttir og
                                Laufey Ása Bjarnadóttir, Azazo/Gagnavarslan

14:00                   Fundarslit

Fundarstjóri: Sigrún Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Ský

Matseðill: Fyllt kalkúnabringa með camembert og ávöxtum borið fram með kartöfluköku og villisveppasósu. Konfekt / kaffi /te

Undirbúningsnefnd:  Stjórn Ský.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar  3.000 kr.


20131210 121319

  • 10. desember 2013