Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.
Það er alltaf gaman að fylgjast með fréttasíðum sem sérhæfa sig í tæknifréttum. Í dag sá ég til dæmis að Spotify og Waze hafa tekið höndum saman til að það sé einfaldara að hlusta á tónlist í bílnum um leið og þú notar GPS til að finna út hvert þú ert að fara. Þetta þýðir að nú mun líklega ekki slokkna á tónlistinni þegar þú reynir að finna réttu leiðina með GPS appinu, þú munt geta hlustað á tónlistina um leið og þú ferð yfir í appið til að fá leiðalýsingu eða þú getur valið tónlist á meðna þú skoðar réttu leiðina.
Við erum tvær mæður með börn á leikskóla, önnur búsett í Bandaríkjunum og hin á Íslandi. Okkur langar að skoða smáforrit sem tengjast samskiptum á milli kennara og foreldra barna í leikskólum. Við fengum veður af því að verið sé að innleiða smáforrit sem heitir Karellen í leikskólum landsins og eftir að hafa heyrt um það langaði okkur að skoða það aðeins betur. “Smáforritinu er ætlað að auðvelda kennurum að miðla skilaboðum, upplýsingum um viðveru barna og myndum af leik og starfi.” (Karellen, 2014).
Okkur langaði að kynna sér betur nýtingu upplýsingatækni í skólum og langaði að fá að heyra sjónarmið kennara. Því það gagnast lítið að vaða bara af stað með innleiðingu og stefnur án þess að heyra frá þeim sem virkilega koma til með að nýta sér hugmyndirnar. Við tókum því viðtal við grunnskólakennarann Ingu Margréti Skúladóttur sem hefur starfað sem kennari í 25 ár og sér núna um námsver í Grunnskólanum í Borgarnesi sem var opnað árið 2015. Námsverið er hugsað sem eins konar griðastaður fyrir nemendur til að koma og geta lært án áreitis. Það fannst okkur hljóma eins og góður staður þar sem hægt væri að prófa sig áfram með nýtingu upplýsingatækni í námi og vildum því vita meir um það.
Skólastofur og skrifstofur voru lengi vel mjög ótæknivæddar en það hefur breyst mikið á síðustu árum. Eftir að internetið varð hluti af hversdagsleikanum hafa hjólin farið að snúast ansi hratt og framundan gætu verið miklar breytingar í kennslustofum sem og í kennsluaðferðum. Multi touch borð og veggir gætu orðið lykillinn af hópavinnu framtíðarinnar hvort sem um er að ræða í skólum eða vinnustöðum.
Árið 2016 hleypti BBC af stokkunum verkefninu Micro:bit. Það fól í sér að öll börn á aldrinum 12-13 ára fengu gefins litla forritanlega vasatölvu með innbyggðum áttavita, bluetooth tækni, hreyfiskynjara og 25 rauðum LED ljósum sem geta birt ýmis skilaboð. Tilgangur verkefnisins var að virkja sköpunargleði barna og kynna þau fyrir grunnþáttum forritunar. Það er skemmst frá því að segja að verkefnið hlaut góðar viðtökur.

Graffiti Research Lab er hópur sem stofnaður var af Evan Roth hakkara og listamanni og James Powderly listamanni, hönnuði og verkfræðingi. Þeir sameinuðu krafta sína og vilja reyna koma til móts við veggjalistamenn og aðra listamenn sem og mótmælendur. Með það í huga hafa þeir þróað ‘laser tagging’ kerfi sem gerir fólki kleift að yfirfæra eða teikna myndir á byggingar úr verulegri fjarlægð. Þetta er gert með þvi að nota grænan laserbendi og DLP skjávarpa.
Nú er komið nýtt ár og því mun án efa fylgja nýjungar í tækni sem verður spennandi að fylgjast með. Margri eru að spá í spilin, hvað muni gerast, hvaða nýjungar nái vinsældum og hvað ekki. Það er mun auðveldara að spá eitt ár fram í tímann en heilan ártug, en í þessum pistli langar mig að fara yfir spá Jayson DeMers (Forbes contributor) sem telur að sjö atriði muni stand upp úr á árinu.