
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.
Samskipti án skrifa eru óskilvirk samskipti
Hæ. Ég heiti Atli og ég er Facebookfíkill.
Hvenær byrjaðir þú á samfélagsmiðlum? Manstu það? Fyrir einhverja þá var MySpace fyrsti samfélagsmiðillinn, en Facebook tók fljótlega við og náði gríðarlegri útbreiðslu á afar skömmum tíma.
Viðtal við Önnu Marsibil Clausen
Hugtakið upplýsingalæsi hefur verið mér sérlega hugleikið síðan í mars á þessu ári þegar Fjölmiðlanefnd, skipuð af menntamálaráðherra, auglýsti lausa stöðu verkefnisstjóra til að vinna og miðla stefnu um upplýsingalæsi fyrir landið allt. Óskað var eftir háskólaprófi og einhver þekking á stefnumótun og upplýsingalæsi talinn kostur. Mér svelgdist á við lesturinn enda hef ég starfað í upplýsingalæsisbransanum frá útskrift í upplýsingafræði árið 2008 og stýri nú öðru háskólabókasafninu á mínum ferli þar sem starfsemin hverfist öll um þetta hugtak, upplýsingalæsi. Upplýsingalæsi er samofið hugmyndinni um gagnrýna hugsun og hvílir á kröfu um rekjanleika og áreiðanleika upplýsinga sem má svo tengja hugmyndinni um lýðræði. Lýðræðið þolir enga leynd.
TikTok is one of the newest social media and therefore comes with new obstacles, new dangers, but also new ways of entertainment. Everyone has different tastes in entertainment and since TikTok is a social media that is all about the people, it must have different types of entertainment to please the most. You can find almost everything on TikTok: from baby videos to people committing crimes, and as good as it is for social media to have range, this is taking it too far and it must be stopped. In this article different trends, or types of videos, will be discussed and if they are good trends, bad trends, or even dangerous trends.
Aðgengi að tónlist hefur stóraukist síðustu tvo áratugi með tilkomu internetsins. En líkt og í öðrum greinum afþreyingariðnaðarins hefur það tekið tíma fyrir tónlistariðnaðinn að aðlagast þeim breytingum og sömuleiðis að sjá sóknarfærin. Margir muna eflaust eftir auglýsingunum á DVD myndum með dramatískri tónlist og upptalningu: „Þú myndir ekki stela bíl, þú myndir ekki stela veski, þú myndir ekki stela sjónvarpi…“ Svipaðar herferðir voru í gangi á fyrsta áratug 21. aldarinnar til að vernda tónlistariðnaðinn og báru sennilega jafn lítinn árangur og þessi eftirminnilega auglýsing.
Upplifun viðskiptavina er einn mikilvægasti þáttur í virðissköpun fyrirtækja þar sem upplifun er lykillinn að tryggð. Með þeirri tækniþróun sem nú á sér stað verða neytendur sífellt kröfuharðari og þurfa því fyrirtæki að huga að upplifun þeirra. Með nýrri tækni hafa samskipti við viðskiptavini breyst mjög mikið og halda áfram að breytast. Margir hverjir keppast við tímann og kemur þá fjórða iðnbyltingin að góðum notum. Það mætti segja að tæknin sé að þróa okkur, hvernig við lifum lífinu. Tæknin í dag er orðin svo hröð og allt umlykjandi. Sama hvað er, leitumst við eftir því að það gerist skjótt.