
Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.
Aðgengi að menntun er sífellt að batna um heim allan og þó að COVID hafi dregið úr þróuninni á sumum svæðum þá hefur COVID leitt til aukinnar tækninotkunar á öðrum svæðum sem getur stuðlað að betra aðgengi og jafnvel betra námi og kennslu. Margir hafa lært að nota Zoom og Teams og aðrir kannast við Slack, Asana, and Trello. En það þarf ekki bara tækni og hugbúnað, það þarf menntað fólk sem getur hannað og þróað tæknina og stuðlað þannig að framförum fyrir okkur öll.
Hádegisfundur Ský var haldinn í sal á Grand Hótel Reykjavik þann 27. apríl síðastliðinn. Umfjöllunarefnið var Netöryggi: Mannlegi þátturinn – stærsta ógnin. Anna Sigríður Íslind, lektor hjá Háskólanum í Reykjavík, sá um fundarstjórn.
Það er stutt síðan að viðhorf sumra sem störfuðu undir regnhlífaheitinu, rannsóknir og þróun, litu niður á hugtök eins og nýsköpun eða vöruþróun (hönnun). Samþætting faggreina fékk ekki mikla athygli undir framangreindu regnhlífaheiti, hvað þá listræn sköpun eða vísindaskáldskapur.
Á minni lífsleið hef ég unnið á nokkrum stöðum í vaktarvinnu, enda eru margir vinnustaðir sem að vinna með vaktafyrirkomulagi. Helst væri þar hægt að nefna veitingarhús, sjoppur, sjúkrahús, verksmiðjur, skemmtistaðir og fleira. Mörg fyrirtæki standa sig ágætlega að gefa út vaktarplön, gefa þau jafnvel út marga mánuði fram í tímann. Önnur fyrirtæki leyfa sér oft að breyta vöktum hjá fólki fram á síðustu stundu.
Veflesarinn WebRICE er þróaður á Mál- og raddtæknistofu Háskólans í Reykjavík undir merkjum máltækniáætlunar fyrir íslensku en það er metnaðarfull áætlun sem er með það að markmiði að tryggja að við getum og munum nota íslensku í samskiptum við og í gegnum stafræn tæki og tölvur. Áætlunin er fjármögnuð af fjárlögum. Allar lausnir verða gefnar út undir opnum leyfum (e. open-source) til að tryggja að einstaklingar, frumkvöðlar og fyrirtæki geti nýtt þær í þágu íslensku þjóðarinnar. Rannsóknar- og þróunarhópurinn SÍM (Samstarf um íslenska máltækni) sér um framkvæmd máltækniáætlunar í samræmi við samning við Almannaróm, miðstöð máltækni. Mál- og raddtæknistofa Háskólans í Reykjavík er aðili að SÍM.
Faghópur Ský um hagnýtingu gagna hélt hádegisverðarfund þann 30.mars 2022 á Grand Hótel Reykjavik. Umræðuefnið bar vinnuheitið „Frá opnum gögnum til viðskiptagreindar“ Mjög góð mæting var á fundinum. Fundarstjóri var Birna Guðmundsdóttir hjá Vinnumálastjórn.
Hlaðvarpsfyrirtækið Hljóðkirkjan var stofnað formlega vorið 2020 og var þá þegar komin með fjóra þætti á dagskrá. Í dag eru 5 þættir sendir út í hverri viku og eru meðal þeirra vinsælustu á landinu, en mest hafa þeir farið upp í 8. Hljóðkirkjan er rekin af bræðrunum Snæbirni og Baldri Ragnarssonum og samþykkti sá fyrrnefndi að svara nokkrum spurningum Tölvumála um þetta spennandi fjölmiðlaform.
Það er óhætt að segja að margt hefur breyst með tilkomu nýrra tækni. Samfélagið í dag stendur á ákveðnum tímamótum þar sem uppi er kynslóð sem notaði ávísunarhefti, kynslóð sem átti vasadiskó og VHS-tæki og að lokum kynslóð sem getur stýrt heiminum í gegnum snjallsímann sinn. Þessar kynslóðir eru svo lánsamar að fá að upplifa hverja stafræna byltingu á fætur annarri frá fyrstu hendi.
Hafnarfjarðarbær hefur um langt árabil verið með innri vef fyrir starfsfólk og síðastliðin fimm ár einnig verið með samskiptamiðilinn Workplace frá Facebook sem hefur styrkt verulega innri upplýsingamiðlun og samskipti á tvö þúsund manna vinnustað. Í sumar fékk miðillinn enn meiri vigt þegar innri vefnum, Læknum, var lokað og efni hans fært yfir á nýja einingu innan Workplace sem kallast Knowledge Library. 