Skip to main content

Glæsileg hátíðardagskrá á Grand hóteli 6. apríl kl. 16:30 - 19:00
fyrir félagsmenn Ský og boðsgesti í tilefni af 
50 ára afmæli Ský 

Afhending UT-verðlauna Ský 2018
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir verðlaunin

Útgáfa bókarinnar
"Tölvuvæðing í hálfa öld - upplýsingatækni á Íslandi 1964-2014"
Ólafur Andri Ragnarsson kíkir inn í framtíðina

Veislustjóri: Ingvar Jónsson, frumkvöðull, tónlistarmaður, rithöfundur og tölvukennari

 Boðskort voru send rafrænt á félagsmenn Ský og aðra sem tengjast UT-verðlaunum Ský og einnig þeirra sem lögðu hönd á plóg við að taka saman sögu tölvuvæðingar á Íslandi. 

 

MG 1088
MG 1089
MG 1091
MG 1092
MG 1095
MG 1096
MG 1099
MG 1100
MG 1102
MG 1103
MG 1106
MG 1107
MG 1110
MG 1111
MG 1115
MG 1117
MG 1118
MG 1123
MG 1127
MG 1130
MG 1131
MG 1132
MG 1134
MG 1136
MG 1138
MG 1139
MG 1140
MG 1141
MG 1143
MG 1147
MG 1148
MG 1149
MG 1151
MG 1152
MG 1155
MG 1160
MG 1162
MG 1165
MG 1168
MG 1169
MG 1170
MG 1172
MG 1176
MG 1177
MG 1178
MG 1182
MG 1185
MG 1186
MG 1188
MG 1189
MG 1190
MG 1191
MG 1193
MG 1197
MG 1198
MG 1199
MG 1204
MG 1206
MG 1208
MG 1211
MG 1213
MG 1214
MG 1215
MG 1217
MG 1218
MG 1219
MG 1220
MG 1221
MG 1224
MG 1229
MG 1234
MG 1235
MG 1239
MG 1240
MG 1241
MG 1242
MG 1248
MG 1258
MG 1266
MG 1269
MG 1273
MG 1278
MG 1280
MG 1288
MG 1291
MG 1296
MG 1297
MG 1302
MG 1313
MG 1319
MG 1320
MG 1322
MG 1325

Hádegisfundur á Grand hóteli 21. mars 2018  kl. 12-14

Íslensk vefverslun - erum við á réttri leið?

Twitter: @SkyIceland #vefverslun

Undanfarna mánuði hefur hraður vöxtur verið í innlendri vefverslun og margir neytendur eru farnir að bæta verslun á netinu við sín reglulegu innkaup. En hversu langt eru íslenskar vefverslanir komnar? Standast þær samanburðinn við þær erlendu hvað varðar framsetningu og þjónustu? Á fundinum verður fjallað um vefverslun á breiðum grunni og fyrirlesarar gegna ólíkum hlutverkum. Þeir munu gefa fundargestum innsýn í hvað það þurfi til að setja upp góða vefverslun og hvað þurfi að vera til staðar í vefverslun svo hún teljist góð, hvað hefur reynst vel og hvað ber að varast? Hvað þarf að vera til staðar á bakvið tjöldin? Hvað er það sem íslenskir neytendur vilja og styður íslenskt viðskiptaumhverfi vel við netverslanir landsins? Einnig verður áhugavert að heyra hvernig fyrirlesarar sjá fyrir sér þróun íslenskar vefverslunar.  

Fundurinn er fyrir starfsfólk og stjórnendur vefverslana og aðra sem hafa áhuga á vefverslun og þróun hennar á Íslandi.

Dagskrá:

11:50   Afhending gagna

12:05   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20   Ég þori ekki að kaupa á netinu
Um reynslusögur, mistök og sigra. Það dylst engum sem fylgist með að notkun vefverslana hefur aukist til muna og mun aukast enn frekar í náinni framtíð. Verslanir eru að fækka sínum “brick and mortar” verslunum og snúa sér í æ auknum mæli að vefnum. Hvað þarf að hafa í huga fyrir vel heppnaða vefverslun, hvað ber að varast og hvernig vinnur vefverslun með hefðbundinni verslun.
Steinunn Jónasdóttir, ofurvefverslunarnotandi og vefstjóri hjá Samskipum

12:40   Verðlaunasjoppa á vefnum
Vefverslun Nova hlaut íslensku vefverðlaunin 2017. Farið verður yfir tilurð vefverslunarinnar, markmið, helstu áskoranir og sigra. Verkefnið er í stöðugri þróun og ýmsar spennandi nýjungar eru væntanlegar í framtíðinni.
Magnús Árnason, nova.is

13:00  Vefverslun er þolinmæðis verk
Það er mikið verk að stofna vefverslun í geira sem flestir hafa ekki trú á og/eða hafa gefist upp á. Hindranir og áskoranir eru margar og það getur tekið á þolinmæðina að leysa vandamál sem hafa ekki verið leyst áður. 
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, boxid.is

13:20   Vefverslun – EKKI bara IT mál
ELKO hefur upplifað mikla vaxtarverki undanfarin ár og var tekin 360° breyting á vinnuferlum til að mæta aukningu í fjölda pantana, minnka gæðavandamál og til að geta mætt kröfum viðskiptavina um hraðari afhendingu. Ein af stoðum góðrar vefverslunar er rétta teymið til að geta unnið saman að þeim áskorunum sem framundan eru  í hraðri tækniþróun, auknum vexti og kröfum íslenskra neytenda að innlendar netverslanir standi jafnfætis við erlendar risanetverslanir.
Dagbjört Vestmann, elko.is

13:40   Pallborð

14:00   Fundarslit

Fundarstjóri: Birna Magnadóttir vefstjóri Ríkiskaupa
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun
Matseðill: Mascrapone og baconvafin kjúklingabringa með seljurótar kartöflumús. Sætindi / kaffi /te á eftir.

Verð fyrir félagsmenn Ský:  5.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.

Hádegisfundur á Grand hóteli 14. mars 2018  kl. 12-14 

Erum við betur stödd með nútímatækni í kennslu eða er hún hamlandi?

 Twitter: @SkyIceland #NutimaKennsla 

Mikil þróun hefur orðið á miðlun námsefnis undanfarin ár og nútímalausnir á netinu í auknu mæli notaðar í kennslu. Hvernig hafa þessar lausnir nýst í skólastarfinu og hvaða áhrif hafa þær  á íslenska tungu?

Fundurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á framþróun nútímatækni, íslenskri tungu og menntamálum.

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Google lausnir í skólastarfi?
Síðustu ár hefur Google lagt mikla áherslu á að útvega lausnir sem eru sérstaklega sniðnar að skólastarfi á 21. Öldinni. Í Fellaskóla hefur verið þróunarverkefni um nokkurt skeið þar sem möguleikarnir með Google lausnum hafa verið skoðaðir.
Páll Ásgeir Torfason, grunnskólakennari í Fellaskóla

12:40-13:00   Nám nútímans - í skýjum, sýndarveruleika og á samfélagsmiðlum
Ógrynni verkfæra eru nú aðgengileg fyrir nemendur við nám sitt og geta þeir leitað víðar fanga en áður hefur þekkst. Þeir geta einnig verið í samstarfi og samskiptum um nám sitt hvenær sem er, hvar sem er. Skiptir þetta máli?
Lára Stefánsdóttir, skólameistari Menntaskólanum á Tröllaskaga

13:00-13:20   Khan Academy í stærðfræði á framhaldsskólastigi
Tækniskólinn hefur keyrt stærðfræðiáfanga þar sem megin áhersla er lögð á vinnu í Khan. Engin kennslubók og allt unnið rafrænt. Námið er skipulagt þannig að nemandinn vinnur á sínum forsendum og er námsmatið blanda af vinnuframlagi og færni í stærðfræði.
Þorsteinn Kristján Jóhannsson, stærðfræðikennari Tækniskólanum

13:20-13:40   Íslenska í ólgusjó: Áhrif samfélags- og tæknibreytinga á tungumálið
Í erindinu verður fjallað um hvernig þær miklu samfélags- og tæknibreytingar sem hafa orðið á Íslandi undanfarinn áratug gætu haft áhrif á íslenskuna. Hugtakið "stafrænn tungumáladauði" (e. digital language death) verður kynnt, rætt hvort líkur séu á að slíkur dauði bíði íslenskunnar, og hvort stafrænn dauði leiði óhjákvæmilega til dauða í raunheiminum.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið HÍ. 

13:40-14:00   Tækni og máltaka barna: Málörvun eða vanörvun?
Sífellt gagnvirkari og notendavænni lausnum fylgir stóraukið en um leið umdeilt aðgengi barna að tækni. Hvaða áhrif hefur þetta á málþroskann? Er verra að stafrænt efni sé á öðru tungumáli en móðurmáli barnanna? Í erindinu verður lögð áhersla á samspil tækni og máltöku og kynntar nýjar leiðir til þess að leita svara við þessum spurningum.
Íris Edda Nowenstein, doktorsnemi við Háskóla Íslands

14:00              Fundarslit

Fundarstjóri: Disa Anderiman

Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps Ský um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT.
Matseðill: Kókosbætt kjúklingasúpa með lime og tailensku karrý. Sætindi / kaffi /te á eftir.

Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Verð fyrir einstaklinga utan vinnumarkaðar: 5.000 kr.

AÐALFUNDUR SKÝ 2018 VERÐUR HALDINN Á GRAND HÓTELI

MIÐVIKUDAGINN 28. FEBRÚAR KL. 12 - 14

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Fundurinn er einungis opinn skráðum félagsmönnum í Ský.

Boðið verður uppá hádegishlaðborð og hvetjum við alla til að efla tengslanetið í góðra vina hópi eftir fundinn. 
Vinsamlegast athugið að tilkynna þarf þátttöku fyrirfram á fundinn með því að senda tölvupóst á sky@sky.is eigi síðar en þriðjudaginn 27. febrúar.

HÉR ER HÆGT AÐ SJÁ SAMÞYKKTIR FÉLAGSINS

FAGHÓPAR INNAN SKÝ ERU EFTIRTALDIR OG ER KOSIÐ Í STJÓRN ÞEIRRA Á AÐALFUNDI SKÝ (NEMA ÖLDUNGADEILD):

Hvetjum alla áhugasama sem vilja starfa í faghópum að bjóða sig fram. Auk þess vantar fólk í Orðanefnd Ský, Siðanefnd og Ritnefnd Tölvumála ásamt stjórn Ský.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, faghópa eða nefndir Ský eru beðnir að hafa samband í gegnum sky@sky.is sem fyrst. Bendum á að tilkynna þarf um framboð í stjórn Ský eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.

Aðalfundur Öldungadeildar Ský verður haldinn
mánudaginn 26. febrúar kl. 12-14.

Fundurinn verður haldinn hjá og í boði OR!GO, Borgartúni 37, 105  Reykjavík, (áður Nýherji).

Á dagskrá verður stutt kynning frá OR!GO og að henni lokinni venjuleg aðalfundarstörf;

Skýrsla stjórnar

Umræður

Stjórnarkjör

Önnur mál

Vinsamlegst staðfestið þátttöku eigi síðar en 24. febrúar með því að svara þessum tölvupósti.

Einnig bið ég ykkur að senda mér póst á annak@hi.is þar sem þið staðfestið móttöku þessa skeytis, hvort sem þið eigið þess kost að taka þátt í fundinum eða ekki.

Það er til þess að ég geti sent ykkur upplýsingar sem fram koma á fundinum.

Anna Kristjánsdóttir, formaður Öldungadeildar Ský.