Skil á efni
Leita í vefútgáfu Tölvumála
Um Tölvumál
Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.
Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.
Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.
Hitchhiker‘s Guide to the Galaxy er frægt útvarpsleikrit eftir Douglas Adams. Þar er fjallað um Englendinginn Arthur Dent sem lendir í því að þurfa að fara á puttanum út í geim eftir að jörðin er eyðilögð. Í geimnum tala menn önnur tungumál sem hann ekki skilur. Til allrar hamingju er vinur hans Ford Prefect með í för og treður litlum gulum slímugum fisk upp í eyrað á honum (BBC, 2014).
Oftast hefur verið dregin upp frekar neikvæð mynd af tölvuleikjaspilun í fjölmiðlum. Í gegnum tíðina hefur ýmislegt verið skrifað í fjölmiðla um áhrif tölvuleikjaspilunar á heilsu okkar og hamingju, þó misvel sé stuðst við vísindalegar rannsóknir. Þar hefur margt verið ritað um tölvuleikjafíkn og ofbeldisfulla tölvuleiki og áhrif þeirra á börn og unglinga. En er ekkert jákvætt við þá?
Flestir kannast við að fara í fjarnám, jafnvel fjarþjálfun, en hvað með að fara í fjarmeðferð við sálrænum og/eða líkamlegum vandamálum? Hér á landi er boðið uppá fjarmeðferð við svefnleysi inná vefnum www.betrisvefn.is.
Þessi misseri er mikil gróska í aðgengismálum á vefnum. Hluti skýringarinnar er þróun löggjafar á Evrópska efnahagssvæðinu sem gerir kröfu um að vefsvæði í framtíðinni fylgi aðgengisstöðlum. Hluti skýringarinnar er líka að internetið er að einhverju leyti að verða fullorðið. Almennt er verið að leita eftir stöðlum og viðmiðum sem tryggja örugga þjónustu og jafnari samkeppni.
Árið 2020 er spáð að nettengd tæki í heiminum verði fleiri en 24 milljarðar. Það þýðir að hver einasti jarðarbúi eigi að meðaltali fjögur nettengd tæki. Öll þessi tæki mynda svo það sem oftast er kallað hlutanet, internet allra hluta eða Internet of Things (IoT) á ensku.
Þeim fjölgar stöðugt sem ráða sinn persónulega aðstoðarmann. Þeir eru að vísu ekki eins snjallir og aðstoðarmenn ráðherra, en nokkuð snjallir samt. Hún Siri greyið hefur þó ansi oft verið skotspónn grínara á netinu, ýmist fyrir hnyttnar eða þá algjörlega fáránlegar athugasemdir. En hverju sem því líður, þá hefur þróun þessara talandi aðstoðarmanna sem byggja á gervigreind verið ótrúleg síðustu ár.
Framundan er páskafrí og þá gefst kannski tími til að skoða áhugaverð myndbönd. Það er alltaf gaman að spá í framtíðina og fyrir þá sem er annt um menntun unga fólksins þá eru margir möguleikar á sveimi og mun vonandi margt breytast á næstunni með tækinýjungum. En til að breytingar verði þá þarf að þekkja til möguleikanna og því datt mér í hug að taka saman lista yfir nokkur myndbönd sem nemendur mínir í HR fundu í leit sinni að athyglisverðu efni tengdu notkun á upplýsingatækni í skólakerfinu.
Companies today face enormous cybersecurity challenges, losing hundreds of billions of euros collectively every year due to data breaches exploited by hackers. Cybersecurity is famously hard, and attackers are increasingly adept at circumventing our cyber defenses. Cyberattacks have caused significant damage for individuals and companies in Iceland and abroad. The exponential growth of cybercrime worldwide has been a stark, consistent and alarming trend as can be seen clearly from this infographic bit.ly/30kDataBreaches.
Fyrirtæki á Íslandi og í heiminum öllum eru að vakna upp við nýjar kröfur markaðarins um aukinn hraða í viðskiptum og aukinn einfaldleika í notkun á þjónustum á netinu. Að hika er sama og að tapa eru undirliggjandi skilaboð til markaðarins en þau fyrirtæki sem ekki taka þetta kall nútímans alvarlega eiga hættu á að hellast úr lestinni og deyja drottni sínum. Ólafur Örn Nielsen hefur starfað við stafræna vöruþróun um allt langt skeið og hefur frá árinu 2015 stýrt ráðgjafafyrirtækinu Kolibri sem sérhæfir sig í að hjálpa fyrirtækjum að þróa stafrænar lausnir í takt við viðskiptastefnu þess og ná þannig auknum árangri. Við höfum því fengið Ólaf til að segja okkur aðeins frá sjálfum sér og sinni vegferð inn í tæknina ásamt því að svipta hulunni af velgengni Kolibri í að aðstoða fyrirtæki við stafræna þróun.